Menning

Guðni og Ragnar til­nefndir til bók­mennta­verð­launa Norður­landa­ráðs

Máni Snær Þorláksson skrifar
Guðni Elísson og Ragnar Helgi Ólafsson eru tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023.
Guðni Elísson og Ragnar Helgi Ólafsson eru tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Vísir/Vilhelm/Art Bicknick

Ljósgildran eftir Guðna Elísson og Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson eru á meðal þeirra verka sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023.

Alls eru fjórtán verk tilnefnd til verðlaunanna. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 31. október í Osló, höfuðborg Noregs.

„Öll verkin sem tilnefnd eru í ár má lesa sem nokkurs konar óð til lífsins – þessa harmræna, kynngimagnaða og undursamlega lífs sem vindur fram á milli einstaklinga, samfélags og náttúru. Mörg þeirra fást við hinar mörgu birtingarmyndir ofbeldis, ýmist með sögulegum, bókmenntalegum eða raunveruleikatengdum vísunum í áföll og niðurbrot,“ segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði.

Hér fyrir neðan má sjá verkin sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlaunanna í ár.

Danmörk:

Fanden tage dig: Beretning om et kvindedrap eftir Niels Frank

Georg-komplekset eftir Kirsten Hammann

Finnland:

Musta peili eftir Emma Puikkonen

Den stora blondinens sista sommar eftir Peter Sandström

Færeyjar:

Karmageitin og Gentukamarið eftir Marjun Syderbø Kjelnæs

Grænland:

Qivittuissuit akornanniinnikuuvunga eftir Katrine Rasmussen Kielsen

Ísland:

Ljósgildran eftir Guðna Elísson

Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson

Noregur:

Kniven i ilden eftir Ingeborg Arvola

Forbryter og straff eftir Kathrine Nedrejord

Samíska málsvæðið:

Jaememe mijjen luvnie jeala eftir Anne-Grethe Leine Bientie og Bierna Leina Biente

Svíþjóð:

Ihågkom oss till liv eftir Joanna Rubin Dranger

En bok för ingen eftir Isabella Nilsson

Álandseyjar:

Konsten att inte hitta sig själv på Bali eftir Zandra Lundberg


Tengdar fréttir

Býður ekki upp á vel­líðunarnasl fyrir hræddar sálir

Guðni Elísson prófessor í bókmenntafræði hefur sent frá sér skáldsögu og því er haldið fram hér fullum fetum að um stórtíðindi sé að ræða. Bókin er doðrantur, 800 síður og marglaga. Um leið og þetta er algjör veisla fyrir bókmenntafræðinga; þaulhugsuð bygging og ótal skírskotanir til bókmenntasögunnar er hún eins og Nafn Rósarinnar eftir Umberto Eco spennusaga á yfirborðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×