Veður

All­hvöss sunnan­átt, rigning og má reikna með vatns­elg á götum

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með að stórir pollar gætu myndast á götum í þéttbýli í dag.
Reikna má með að stórir pollar gætu myndast á götum í þéttbýli í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir allhvassri sunnanátt með rigningu eða slyddu um sunnan- og vestanvert landið í dag, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan fram eftir degi.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að mögulega gæti orðið vatnselgur á götum núna í morgunsárið þar sem hlýni með rigningu, einkum í þéttbýli.

Í kvöld hvessir frekar og gengur í suðvestan hvassviðri eða storm á norðanverðu landinu og eru gular viðvaranir í gildi á Vestfjörðun, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Suðausturlandi og Miðhálendi.

Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan

„Á morgun heldur sunnan hvassviðri eða stormur áfram en með talsverðri rigningu í fyrstu. Þegar líður á daginn kólnar og bætir í vindinn, en eftir hádegi stefnir í suðvestan storm eða rok með slydduéljum eða éljum og eru einnig gular viðvaranir í gildi vegna þess. Fólk er hvatt til að fylgjast með þróun veðurspáa fyrir helgina þar sem áframhaldandi lægðagangur ætlar lítið að gefa eftir,“ segir í tilkynningunni.

Gulu viðvaranirnar eru í gildi fyrir land allt frá klukkan 16 á morgun til miðnættis. Von sé á suðvestan stormur eða rok, 20 til 28 metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður í vindstrengjum við fjöll um norðvestanvert landið. „Skúrir og síðar él, en úrkomulítið norðaustantil, og því víða takmarkað skyggni í skafrenning eða éljum. Samgöngutruflanir eru líklegar og hætt við foktjóni.“

Gular viðvaranir taka gildi á landinu öllu síðdegis á morgun.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Sunnan 18-25 m/s með rigningu, talsverð rigning sunnantil, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig. Snýst í suðvestan storm síðdegis með slydduéljum eða éljum og kólnandi veðri.

Á sunnudag: Suðlæg átt 5-10 m/s og él, en þurrt um austanvert landið. Hiti kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu sunnantil um kvöldið og hlýnar.

Á mánudag: Hvöss sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 5 til 10 stig.

Á þriðjudag: Snýst í suðvestanátt með skúrum og síðar éljum sunnan- og vestanlands, en þurrt um landið norðaustanvert. Kólnandi.

Á miðvikudag: Suðvestlæg átt með éljum, en þurrt norðaustantil. Hiti um frostmark.

Á fimmtudag: Útlit fyrir áframhaldandi suðvestlæga átt með skúrum eða éljum og hiti í kringum frostmark.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×