Tónlist

Björk tilkynnir tónleikaröð í Reykjavík: Stærsta sýningin hingað til

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Björk mun halda þrenna tónleika í Laugardalshöll í sumar.
Björk mun halda þrenna tónleika í Laugardalshöll í sumar. Santiago Felipe/Getty Images

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir var að tilkynna tónleikaröð hérlendis í júní en hún mun halda þrenna tónleika í Laugardalshöll.

„Mikilfengleg tónlistarupplifun“

Í fréttatilkynningu frá Senu segir að Björk bjóði gestum í mikilfenglega tónlistarupplifun í heimaborg sinni, Reykjavík, 7., 10. og 13. júní næstkomandi.

Í spilaranum hér að neðan má sjá tónlistarmyndband við lagið atopos sem er að finna á plötu Bjarkar, fossora:

Cornucopia var alltaf hugsuð sem veröld fyrir bæði utopiu og plötuna eftir hana, sem er nú komin út og heitir fossora. Ég er því mjög spennt að frumsýna í sumar á íslandi og sjá þessa tvo heima sameinast,“ segir Björk.

Talrænt leikhús og framtíðarkenndur sýndarveruleiki

Sýningin er tvær klukkustundir á hefðbundnu sviði og flutt verður tónlist af plötum hennar Útópíu og Fossoru. Er um að ræða stærstu sýningu sem Björk hefur gert og verður einn mesti fjöldi talrænna leiktjalda sem hafa verið á einu sviði.

Hún kallar þetta talrænt leikhús (e. digital theatre), eða lanterna magica, þar sem áheyrendur eru umkringdir tugi talrænna skjáa með hljóðfæraleikara, kór, flautur, klarínett, slagverk og ótal mörgum sérsmíðuðum hljóðfærum.

Hamrahlíðakórinn verður með Björk á tónleikunum í júní.Aðsend

„Laugardalshöll verður gjörbreytt og mun bjóða gestum í stórfenglegt landslag sem samanstendur af gróskumiklum litum, framtíðarkenndum sýndarveruleika og draumakenndri áferð náttúrunnar. 

Tónleikagestum gefst tækifæri til að sökkva sér í stórkostlega tónlistarupplifun þar sem náttúran og tæknin sameinast á töfrandi hátt,“ 

segir í fréttatilkynningu. Miðasala verður kynnt innan skamms.

Sýningin er framleidd af verðlaunuðum hópi listamanna og tæknimanna, þar sem stafræni heimurinn sameinast leikhúsheiminum undir stjórn Bjarkar. Sérstakir gestir verða meðlimir Hamrahlíðakórsins. 


Tengdar fréttir

Björk treður upp á Coachella 2023

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir mun koma fram á einni stærstu tónlistarhátíð Bandaríkjanna, Coachella í apríl.

Björk sló í gegn í Los Angeles

Tónlistarkonan Björk hélt tónleika í Shrine Auditorium tónleikahöllinni í Los Angeles í gærkvöldi við góðar viðtökur. Tónleikarnir voru hluti af Cornucopia tónleikaferðalagi hennar í Bandaríkjunum. En þetta voru fyrstu tónleikarnir af þremur sem hún mun halda í Los Angeles, áður en förinni verður heitið til San Fransisco.

Björk hélt sína fyrstu tón­leika á Ís­landi í þrjú ár

Björk hélt sína fyrstu tónleika af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í gær. Hún kom fram ásamt strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Viktors Orra Árnasonar. Flutt voru lög af plötunum Post, Vespertine og Dancer in the Dark.

Björk getur loksins haldið tónleikana sína í Reykjavík

„Það gleður okkur að staðfesta að tónleikaserían Björk Orekstral - Live From Reykjavík getur loksins farið fram í Eldborgarsal Hörpu á dögunum 11., 24., 31. október og 15. nóvember,“ segir í nýrri tilkynningu frá Senu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×