Tónlist

Magnaður píanóflutningur Víkings Ólafs­sonar á eyði­eyju

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Víkingur Ólafsson flutti Ave Maria á Engey.
Víkingur Ólafsson flutti Ave Maria á Engey. Erlendur Sveinsson

Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson var að senda frá sér stórfenglegt myndband af píanótónleikum, í samvinnu við Deutsche Grammofone, Erlend Sveinsson og Kristínu Sævarsdóttur. Á myndbandinu spilar hann lag Sigvalda Kaldalóns, Ave María, á eyðieyjunni Engey. Eyjan er staðsett rétt fyrir utan Reykjavík, skammt frá Viðey.

Flugu með píanó á eyðieyju

Í samtali við Vísi segir Erlendur, leikstjóri myndbandsins, að þau hafi flogið með píanó út í Engey til að taka upp þennan tónlistarflutning. Kristín Sævarsdóttir, sem framleiddi myndbandið, er eigandi píanósins og komst það að heilu og höldnu fram og til baka. Baldvin Vernharðsson sá um kvikmyndatöku.

Sjón er sögu ríkari en myndbandið má finna í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Víkingur Ólafsson spilar Ave Maria í Engey

Þau tóku einnig upp myndband af gerð tónlistarflutningsins og eins og sjá má er ansi metnaðarfullt verk að baki:

Klippa: Bak við tjöldin: Víkingur Ólafsson í Engey

Gefur von og færir ljós

„Við ansi stolt með viðbrögðin sem myndbandið hefur fengið,“ segir Erlendur og bætir við:

„Engey er ansi áhugaverð eyðieyja. Þar var búið lengi vel og má rekja hina víðfrægu Engeyjarætt þangað. Þar eru rústir í dag og minnisvarðar um kirkju sem eitt sinn stóð þar.“

Öllu var til tjaldað fyrir gerð myndbandsins.Erlendur Sveinsson

„Þetta lag er mjög oft spilað á dimmustu stundum lífs okkar, til að gefa von og færa ljós,“ segir Víkingur Heiðar meðal annars í tengslum við valið á Ave María.

Víkingur og Sigurður Kristinsson, jafnan þekktur sem Diddi, sem flaug með hópnum á eyjuna til að stilla píanóið. Erlendur Sveinsson

Magnað augnablik

Frægðarsól Víkings skín ansi skært um þessar mundir enda er hann einn eftirsóttasti píanóleikari heims og er lagið tekið af nýútgefinni plötu hans From Afar sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur.

„Undir lok myndbandsins, þegar Víkingur slær seinustu nótu sína, er hrafn sem flýgur af stað í átt að myndavélinni, eins og um sé að ræða þaulæft augnablik. Þess má geta að þetta er ansi mögnuð tilviljun og náðust viðbrögð leikstjóra á mynd,“ segir Erlendur en hægt er að sjá þau í gerð myndbandsins.

Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá tökustað:

Víkingur Ólafsson hefur náð miklum árangri í tónlistarheiminum en plata hans From Afar hefur hlotið mjög góðar viðtökur.Erlendur Sveinsson

Píanóinu var flogið út á eyjuna en það er í eigu Kristínar og komst heim óskaddað.Erlendur Sveinsson

Bak við tjöldin.Erlendur Sveinsson

Tökur fóru fram á eyðieyjunni Engey.Erlendur Sveinsson

Tengdar fréttir

Fingurinn bjargaðist rétt í tæka tíð

Píanósnillingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson lenti í smá hryllingssögu að eigin sögn þegar hann vaknaði með slæma sýkingu í vísifingri og framundan voru tvennir tónleikar um kvöldið. Blessunarlega fór betur en á horfðist en hann deildi þessu á Instagram síðu sinni.

Víkingur Heiðar og EFLA hlutu útflutningsverðlaunin

Fyrirtækið EFLA hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari var heiðraður fyrir störf sín á erlendri grundu. Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri EFLU, veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×