Í hugleiðingum veðurfræðings segir að sunnan- og suðvestanlands fari úrkoman yfir í rigningu á láglendi þegar líði á morguninn og hlýni á þeim slóðum. Lesa má um viðvaranir í gildi á vef Veðurstofunnar.
„Það lægir síðan um tíma síðdegis á sunnanverðu landinu, en snýst síðan í allhvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum. Heilt yfir má þó segja að það dragi úr vindi og úrkomu á landinu í kvöld og nótt og víða skaplegt veður í fyrramálið. Það stendur þó ekki lengi, því eftir hádegi á morgun gengur í suðaustan og sunnan hvassviðri eða storm með rigningu og hlýindum,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Það hefur bæst í snjóinn á höfuðborgarsvæðinu og er og snjóþekja eða hálkublettir á flestum leiðum í borginni. Sömu sögu er að segja af Suðurlandi þar sem er skafrenningur og hvassvirðri þótt enn sem komið er séu flestir vegir færir. Þó er lokað um Krýsuvík.
Á Vesturlandi er Þungfært um Bröttubrekku og í Helgafellssveit og ófært á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur en lokað er um Fróðárheiði. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Víða eru fjallvegir ófærir og lítið ferðaveður. Annarstaðar á landinu er staðan svipuð og óvissustig víða í gildi sem þýðir að vegum gæti verið lokað með stuttum fyrirvara.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Vegagerðarinnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Gengur í suðaustan og síðar sunnan 15-25 m/s, hvassast vestanlands. Víða rigning, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hlýnar, hiti 3 til 9 stig síðdegis.
Á laugardag: Suðvestan 13-20 og él, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki.
Á sunnudag: Sunnan hvassviðri eða stormur með rigningu og hlýindum, en úrkomulítið norðaustantil á landinu.
Á mánudag: Allhvöss suðvestanátt með éljum og frystir.
Á þriðjudag: Suðvestan stormur með snjókomu eða éljum.
Á miðvikudag: Líkur á að lægð fari yfir landið með breytilegri vindátt og hvössum vindi. Víða úrkoma og hiti kringum frostmark.