Barði í borð og sagði Katrínu hafa samþykkt eiturpillu í loftslagsmálum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. desember 2022 21:37 Andrési Inga Jónssyni, þingmanni Pírata, var töluvert niðri fyrir við umræður um loftslagsmál á þinginu í dag. vísir/Vilhelm Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarflokkanna og Miðflokks greiddu atkvæði með frumvarpinu. Þingmaður Pírata segir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa samþykkt eiturpillu inn í aðgerðaráætlun í loftslagsmálum.
Heimildinni var bætt inn í fjárlagafrumvarpið fyrir þriðju og síðustu umræðu um málið. Andrési Inga Jónssyni, þingmanni Pírata, var ekki skemmt þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Hér er verið að eitra aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum með ónýttum heimildum stóriðjunnar varðandi losun gróðurhúsalofttegunda. Það er verið að bjóða upp á að það að stjórnvöld nýti sér glufu í samevrópsku regluverki sem þau geta valið að nýta sér ekki.“ Hann sakaði umhverfisráðherra um að láta eins og Íslandi væri skylt að innleiða heimildina. „Það er verið að nota síðustu daga fyrir þinglok til þess að koma þessu inn í regluverkið til þess að flokkarnir sem ekki ná saman um metnaðarfullar aðgerðir í loftslagsmálum geti gefið sjálfum sér afslátt. Ríkisstjórnin verður að átta sig á því að raunverulegar aðgerðir sé það eina sem dugar gegn hamfarahlýnun. Ekki bókhaldsbrellur. Með því að setja þetta ákvæði í lög og nýta það er ríkisstjórnin að snúa baki gegn vísindunum og gefast upp í aðgerðum gegn loftslagsvísindum.“ Á að hjálpa ríkjum með ströng losunarmörk og litla möguleika Tillöguna um að heimila ráðstöfun losunarheimilda sem tilheyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda (ETS) til móts við loftslagsskuldbindingar íslenska ríkisins var lögð fram þriðju og síðustu umræðu um fjárlagafrumvarpið. ETS-kerfið svonefnda nær yfir stóriðnað og flug. Samkvæmt því þurfa rekstraraðilar að kaupa losunarheimildir á síhækkandi verði. Samhliða því fá ríki losunarheimildir endurgjaldslaust sem þau geta selt. Álverin þrjú, járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga og kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka heyra meðal annars undir kerfið hér á landi. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, var samflokksmaður Andrésar Inga. Hann yfirgaf flokkinn í nóvember 2019.Vísir/Vilhelm Losun stóriðjunnar fellur þannig ekki undir losun á beina ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Tillaga fjárlaganefndar byggir á sérstöku sveigjanleikaákvæði sem níu ríki í Evrópu mega nýta sér og veitir heimild til þess að nota takmarkaðan hluta ETS-losunarheimildanna til þess að standa skil á skuldbindingum um samdrátt í losun á beinni ábyrgð viðkomandi ríkis á tímabili Parísarsamkomulagsins frá 2021 til 2030. Tilgangur ákvæðisins er að auðvelda ríkjum með ströng losunarmörk og takmarkaða möguleika á hagkvæmum aðgerðum til að draga úr losun að standast skuldbindingar sínar. Í nefndarálitinu segir að með heimildinni sé mögulegt að ráðstafa óseldum losunarheimildum sem yrðu annars boðnar upp í ETS-kerfinu til að jafna út þörf fyrir nýjar heimildir svo að Ísland standist alþjóðlegar skuldbindingar. Skaut á þingmenn Miðflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra steig í pontu og svaraði Andrési Inga. „Hér fóru menn með stór orð. Þeir máttu eiga það að þeir voru alltaf með fyrirvara við þessa tillögu sem er fyrst og fremst til að auka gagnsæi. Nú ætla ég virðulegi forseti að fylgjast með þeim háttvirtum þingmönnum sem hér töluðu, því við erum að fara í þær aðgerðir sem við þurfum að fara í til að ná þessum háleitu loftslagsaðgerðum. Það er ekki nóg að vera með stórorð, við erum að fara í stóra vegferð. Það hefur vantað svolítið upp á að háttvirtir þingmenn hafi stutt við þær aðgerðir þegar þær hafa komið til atkvæða,“ sagði Guðlaugur Þór. Hann skaut svo föstum skotum á þingmenn Miðflokksins sem höfðu gert grein fyrir atkvæði sínu. „Það er gott að segja söguna, sjá hverjir hófu þessa vegferð. Það vantaði ekki stóru orðin í París á sínum tíma þegar að þáverandi hæstvirtur forsætisráðherra gekk fram og var með stórar yfirlýsingar ásamt hæstvirtum umhverfisráðherra þeirrar ríkisstjórnar, hæstvirtum utanríkisráðherra þeirrar ríkisstjórnar. Ég hlakka til að rifja upp þessa sögu því hún hefur hugsanlega breyst,“ sagði Guðlaugur Þór. Vísaði hann þar til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra en Sigrún Magnúsdóttir var umhverfisráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í tíð hans sem forsætisráðherra. Um leið heyrðist Bergþór Ólason kalla úr sal að hann hefði nú stutt tillöguna. Farinn að sjá í gegnum grænþvottinn Andrés Ingi sagðist í framhaldinu velta því fyrir sér hvort grænþvottaefnið væri svo sterkt að það valdi einhverjum sjálfsblekkingarhrifum í hugum stjórnarliða. „Vegna þess að hæstvirtur umhverfisráðherra virðist í alvöru trúa því að ríkisstjórnin hafi sett sér háleit markmið og ætli að standa við einhver stór orð.“ Andrés Ingi vísaði til álits loftslagsráðs sem var birt í gærkvöldi þar sem fram kemur að íslensk stjórnvöld verði að taka sig á til að má settum loftslagsmarkmiðum. Ráðið segir markmiðin óljós og ómarkviss, enn einu sinni að sögn Andrésar Inga. Til að bæta gráu ofan á svart ætli ríkisstjórnin að millifæra loftslagsheimildir inn á óuppfærða metnaðarlausa aðgerðaráætlun frá því eftir kosningarnar í fyrra. „Til að þurfa að gera minna,“ sagði Andrés ósáttur og sló höndum af krafti í púltið. „Stór orð eru það eina sem hæstvirtur umhverfisráðherra hefur fram að færa í loftslagsmálum er ég hræddur um. Það sýnir loftslagsráð. Þetta er ekki bara stjórnarandstöðuþingmaðurinn að tala. Þetta sýna öll sérfræðiáælit loftslagsráðs, að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er með hangandi hendi í loftslagsmálum. Hún gerði enn verra með því að samþykkja eiturpillu inn í aðgerðaráætlun hér rétt áðan í atkvæðagreiðslu. Grænþvotturinn, við erum farin að sjá í gegnum hann.“
Loftslagsmál Umhverfismál Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira