Tónlist

Með­limur BTS hefur her­þjálfun

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Borðar með andliti Jin buðu hann velkominn á herstöðina í Yeoncheon.
Borðar með andliti Jin buðu hann velkominn á herstöðina í Yeoncheon. Getty/Chung Sung-Jun

Hinn þrjátíu ára gamli Jin, elsti meðlimur suður-kóresku K-pop sveitarinnar hefur nú hafið herþjálfun þar í landi. Jin er fyrsti meðlimur sveitarinnar til þess að hefja þjálfun í kjölfar herkvaðningar.

Getgátur höfðu verið uppi um það að meðlimir sveitarinnar myndu ekki vera kvaddir í herinn vegna frægðar og vinsælda. Þær sögusagnir reyndust á endanum ekki vera á rökum reistar og varð niðurstaða í málinu ljós í október síðastliðnum.

Samkvæmt suður-kóreskum lögum þurfa allir karlmenn á aldrinum 18 til 28 að ára sinna átján mánaða herskyldu áður en þeir verða 28 ára. Árið 2020 fór lagabreyting í gegn hjá suður-kóreska þinginu sem gerði frægum tónlistarmönnum kleift að fresta uppfyllingu herskyldu sinnar um tvö ár eða þar til þeir yrðu þrítugir.

Samkvæmt umfjöllun CNN hefur Jin nú verið færður á herstöðina Yeoncheon sem er minna en 16 kílómetrum frá þeirri afmörkun sem skilur að norður og suður-kóreu.

Aðdáendur stjörnunnar ásamt fjölmörgum fulltrúm fjölmiðla hafi mætt við herstöðina til þess að gera tilraun til þess að sjá Jin. Þar hafi mátt sjá borða sem settir hafi verið upp til þess að bjóða hann, sem og aðra nýliða, velkomna.

Í október kom fram að allir meðlimir BTS sveitarinnar skyldu nú bráðlega heiðra skyldu sína gagnvart hernum. Sveitin muni svo koma saman á ný þegar þeir hafi allir uppfyllt þau skilyrði herkvaðningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×