Tónlist

Adele drekkur vín og þykir líkleg til vinsælda

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Lagið I Drink Wine frá Adele þykir líklegt til vinsælda á Íslenska listanum á FM.
Lagið I Drink Wine frá Adele þykir líklegt til vinsælda á Íslenska listanum á FM. Getty/Gareth Cattermole

Breska stórstjarnan og söngkonan Adele var kynnt inn sem líkleg til vinsælda á Íslenska listanum á FM í dag með lagið I Drink Wine. Lagið er að finna á plötunni 30 sem Adele sendi frá sér í fyrra.

Nýlegar vinsældir lagsins má líklega rekja til þess að hún sendi nýlega frá sér sjö mínútna tónlistarmyndband við það fyrr í vetur, um ári eftir útgáfu. Myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan.

David Guetta og Bebe Rexha sitja svo óstöðvandi á toppnum enn og aftur með lagið I’m Good (Blue) og Elton John og Britney Spears fylgja fast á eftir með lagið Hold Me Closer

Þá er tvíeykið Sam Smith og Kim Petras í þriðja sæti listans með lagið Unholy sem hefur notið mikilla vinsælda víða um heiminn, þá sérstaklega á samfélagsmiðlinum TikTok en sá miðill getur haft afgerandi áhrif á vinsældir laga víða um heiminn.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

P!nk ætlar aldrei að hætta að dansa

Tónlistarkonan P!nk skipar ellefta sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Never Gonna Not Dance Again. Vinsældum þessarar sögulegu söngkona virðast engin takmörk sett en hún hefur haldið sér stöðugri í rúm 22 ár í heimi tónlistarinnar.

Danslagið Infinity endurfætt á Íslenska listanum

Danssmellurinn Infinity með Guru Josh Project kom upprunalega út árið 1989 og var svo endurútgefið árið 2008 við miklar vinsældir. Tónlistarmaðurinn Willy William hefur nú gefið út lagið Trompeta sem líkist óneitanlega Infinity en hann notar hljóðbúta úr Infinity og gefur þeim nýtt líf.

Rihanna var nálægt því að hafna Super Bowl

Tónlistarkonan Rihanna er mætt á Íslenska listann á FM957 eftir langa fjarveru en hún gaf út sitt fyrsta lag í sex ár í lok október. Lagið heitir „Lift Me Up“ og var samið fyrir kvikmyndina „Black Panther: Wakanda Forever“.

24 ára gamalt lag í glænýjum búning

Tónlistarfólkið David Guetta og Bebe Rexha sitja í fyrsta sæti Íslenska listans á FM957 þessa vikuna með lagið I’m Good (Blue). Er hér á ferðinni eins konar endurgerð á laginu Blue Da Ba Dee sem næntís sveitin Eiffel 65 gerði gífurlega vinsælt árið 1998.

Morgunsólin skín á Íslenska listanum

Tónlistarmaðurinn Aron Can skaust upp á stjörnuhimininn árið 2016 og hefur með sanni náð góðum árangri í íslensku tónlistarlífi. Lagið hans Morgunsólin situr í áttunda sæti íslenska listans á FM þessa vikuna.

Óheilög og gríðarlega vinsæl

Tónlistarfólkið Sam Smith og Kim Petras sameinaði krafta sína við lagið Unholy sem situr í sjöunda sæti Íslenska listans á FM þessa vikuna. Lagið kom út fyrir mánuði síðan og hefur slegið í gegn í tónlistarheiminum sem og á samfélagsmiðlinum TikTok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×