Erlent

Sprengifimt efni sent forsætisráðherra Spánar

Kjartan Kjartansson skrifar
Lögreglumenn á ferð við sendiráð Úkraínu í Madrid í gær. Einn særðist þegar blossaði ákafleg upp úr bréfi sem barst sendiráðinu og var stílað á sendiherrann.
Lögreglumenn á ferð við sendiráð Úkraínu í Madrid í gær. Einn særðist þegar blossaði ákafleg upp úr bréfi sem barst sendiráðinu og var stílað á sendiherrann. AP/Paul White

Innanríkisráðuneyti Spánar upplýsti í dag að sprengifimt efni hefði verið sent til Pedro Sánchez, forsætisráðherra, í síðustu viku. Fréttirnar koma í kjölfar þess að í það minnsta fjögur önnur slík bréf hafa borist stofnunum og fyrirtækjum síðasta sólarhringinn.

Starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid slasaðist lítillega þegar öflugur blossi gaus upp þegar hann handfjatlaði bréf sem barst því í gær. Sambærileg bréf voru send vopnaverksmiðju í Zaragoza og flugherstöð nærri Madrid. Þá var eitt bréf til viðbótar stílað á Margarítu Robles, varnarmálaráðherra, í morgun.

Nú hefur innanríkisráðuneytið upplýst rannsóknardómstól sem rannsakar bréfasendingarnar að sambærilegt bréf hafi verið sent í La Moncloa, forsetahöllina í Madrid, og að það hafi verið stílað á Sánchez, forsætisráðherra, að sögn spænska dagblaðsins El País. Bréfið til Sánchez er sagt hafa verið handskrifað og tölvupóstfang var skráð sem sendandi.

Heimildir blaðsins herma að bréfin fimm hafi öll verið eins. Bréfið sem barst Sánchez var stöðvað þegar það fór í gegnum gegnumlýsingartæki á fimmtudag í síðustu viku. Því var eytt en ekki var greint frá atvikinu til þess að spilla ekki fyrir rannsókn á því, að sögn heimildarmanna blaðsins innan stjórnarráðsins. Öryggiseftirlit við opinberar byggingar var aukið eftir að bréfið fannst.

Rannsakendur eru sagðir beina sjónum sínum að tengslum bréfanna og hvort að þau hafi eitthvað með innrás Rússa í Úkraínu að gera. Spænska ríkisstjórnin sendi Úkraínumönnum vopn af sömu gerð og eru framleidd í vopnaverkskmiðjunni sem fékk eitt bréfið.

Bréfið sem fannst á herflugvellinum í Torrejón de Ardoz nærri Madrid í nótt var stílað á yfirmann gervihnattamiðstöðvar Evrópusambandsins. Í morgun fannst svo enn eitt bréfið í varnarmálaráðuneytinu í Madrid, stílað á Robles ráðherra. Sprengjusérfræðingar sprengdu það bréf skömmu eftir klukkan ellefu að staðartíma í morgun.


Tengdar fréttir

Þrjár bréf­sprengjur á Spáni á einum sólar­hring

Bréfsprengjur hafa verið sendar á þrjá staði á Spáni síðasta sólarhringinn, nú síðast til herflugvallar þaðan sem fylgst er með gervihnöttum. Starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid særðist lítillega þegar bréfsprengja sprakk þar í gær.

Starfsmaður sendiráðs Úkraínu særður eftir bréfsprengju

Einn starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid, höfuðborg Spánar, er sagður særður eftir bréfsprengja sprakk þar um miðjan dag. Lögreglan virkjaði viðbúnað vegna hryðjuverka og sprengjusérfræðingar voru sendir á staðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×