Allhvass vindur og væta með köflum Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2022 07:21 Hiti á landinu í dag verður á bilinu tvö til átta stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðaustan- og austanátt með allhvössum vindi eða strekkingi í dag. Reikna má með vætu með köflum, en á Suðausturlandi og Austfjörðum verði rigningin samfelldari og ákefðin sums staðar talsverð.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á Vesturlandi verði hins vegar úrkomulítið þó eitthvað dropi víðast hvar. Hiti verður á bilinu tvö til átta stig. Óvissustigi almannavarna var lýst yfir á Austurlandi vegna skriðuhættu í gær. Mikið hefur rignt á svæðinu í nóvember og er grunnvatnsstaða há í landshlutanum. Sérstaklega er fylgst með skriðuhættu á Seyðisfirði. „Norðaustan 5-15 m/s á morgun, hvassast norðvestantil á landinu. Rigning með köflum víða um land, en á Suður- og Vesturlandi verður yfirleitt þurrt. Eftir hádegi bætir svo heldur í úrkomu fyrir austan. Áfram milt í veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan og austan 5-15 m/s, hvassast norðvestantil. Þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi, annars væta með köflum, en bætir í úrkomu á norðaustanverðu landinu eftir hádegi. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt 10-18 um morguninn og allvíða rigning. Dregur úr vindi eftir hádegi og styttir upp í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðan 8-15 og rigning eða snjókoma með köflum, en úrkomumeira norðaustanlands. Yfirleitt þurrt sunnantil á landinu. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á mánudag: Breytileg átt og dálítil él norðanlands, annars þurrt að kalla. Víða vægt frost, en hiti um og yfir frostmarki við ströndina. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og fer að rigna, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira