Suðvestanátt og strekkingur um landið norðvestanvert Atli Ísleifsson skrifar 18. október 2022 07:20 Hiti á landinu í dag verður á bilinu tvö til átta stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir suðvestanátt í dag og á morgun og má víða reikna með golu eða kalda, en strekkingi um landið norðvestanvert. Jafnvel má búast við allhvössu í afmörkuðum strengjum við fjöll á því svæði.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á vestanverðu landinu verði skýjað veður og að þurrt, en að búast megi við smávegis vætu af og til á morgun. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til átta stig. „Á austurhelmingi landsins verður hins vegar léttskýjað og fallegir haustdagar í vændum þar. Það var frekar kalt í norðanáttinni um helgina, en með suðvestanáttinni færist mildari loftmassi yfir landið og hiti verður víða á bilinu 3 til 8 stig,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 5-15 m/s, hvassast norðvestanlands. Léttskýjað á austanverðu landinu, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 3 til 8 stig. Á fimmtudag: Snýst í austan og norðaustan 3-8 m/s. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 6 stig, en víða vægt frost á Norðaustur- og Austurlandi. Á föstudag: Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og skýjað, en léttskýjað suðvestantil á landinu. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðlæg átt 3-8. Skýjað og úrkomulítið sunnan- og vestanlands, hiti 1 til 6 stig. Bjartviðri um landið norðaustanvert og hiti um eða undir frostmarki. Á sunnudag: Suðlæg átt og dálítil væta á sunnanverðu landinu, en bjart norðantil. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Á mánudag: Austlæg átt með þurru veðri, en smáskúrum við suðurströndina. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira