Tónlist

Ræddu um að breyta textanum og byrja að syngja um sveppi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Helgi Björns á æfingu SSSÓL.
Helgi Björns á æfingu SSSÓL. Mummi Lú

Hljómsveitin SSSÓL hitar nú upp fyrir væntanlega 35 ára afmælistónleika sem fara fram í Háskólabíó 15.október 2022.

Þeir Ingólfur Sigurðsson, Jakob Smári Magnússon, Eyjólfur Jóhannsson, Hrafn Thoroddsen, Stefán Már Magnússon og Helgi Björnsson tóku nokkur vel valin lög á æfingu sem fór fram í beinni útsendingu hér á Vísi í vikunni.

Þeir byrjuðu á að blása á afmælisköku saman áður en þeir byrjuðu að spila. Þeir hófu æfinguna á laginu Ef ég væri guð. Eitt af því sem þeir ákváðu að æfa var hoppið sitt fræga.

Hljómsveitin SSSÓL fagnar nú 35 ára afmæli.Mummi Lú

Helgi Björns ræddi það á æfingunni að breyta textanum í laginu Ég sé epli. Lagið var samið fyrir kvikmyndina Veggfóður sem kom út árið 1992.

„Myndin fjallaði náttúrulega mikið um einhverja sveppi,“ útskýrði Helgi fyrir áhorfendum. „Leikstjórinn kom til mín og bað mig að semja lag, sem væri Ég sé sveppi.“

Hljómsveitin blæs á kökuna sína.Mummi Lú

Helgi gerði það ekki og söng þess í stað Ég sé epli. Hann velti því fyrir sér á æfingunni að breyta þessu núna og syngja frekar um sveppi eins og upprunalega hugmyndin var. 

„Af því að núna er þetta allt í lagi,“ sagði Helgi og vísaði þar í að í dag tekur fólk sveppi í lækningarskyni. 

Opnu æfinguna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×