Tónlist

Ábreiða Bríetar af lagi Ásgeirs Trausta slær í gegn

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Bríet situr í sjöunda sæti Íslenska listans.
Bríet situr í sjöunda sæti Íslenska listans. Vísir/Hulda Margrét

Bríet skipar sjöunda sæti íslenska listans þessa vikuna með einstaka ábreiðu sína af laginu Dýrð í Dauðaþögn sem Ásgeir Trausti gaf út fyrir tíu árum síðan af samnefndri plötu. 

Þessa útgáfu Bríetar er að finna á plötunni Stór Agnarögn sem kom út í ágúst síðastliðnum til heiðurs tíu ára afmæli Dýrðar í Dauðaþögn.

Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda fyrir hálfum mánuði og hækkar sig um tvö sæti á milli vikna.

Britney Spears og Elton John sitja stöðug í fyrsta sæti Íslenska listans aðra vikuna í röð með smellinn Hold Me Closer en David Guetta og Bebe Rexha fylgja í öðru sæti með lagið I’m Good (Blue). Bæði lög eru endurgerð af gömlum lögum, lag Elton’s og Britney minnir á Tiny Dancer og I’m Good er nýstárleg útgáfa af næntís smellnum Blue (Da Ba Dee)

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga frá klukkan 14:00-16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Frumflutningur á Vísi: Úrvalslið íslensks tónlistarfólks flytur Dýrð í dauðaþögn

Tónlistarmaðurinn Ásgeir gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn fyrir tíu árum síðan og markaði það ákveðið upphaf af hans velgengni í heimi tónlistarinnar. Úrvalslið íslensks tónlistarfólks hefur nú gert eigin útgáfur af lögum plötunnar í nýrri endurútgáfu. Platan, sem ber nafnið Stór agnarögn, kemur út á helstu streymisveitur í næstu viku en er frumflutt hér á Vísi í dag. 

Frumsýning á Vísi: Tónlistarmyndband Ásgeirs Trausta við lagið Snowblind

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýju lagi og tónlistarmyndbandi frá tónlistarmanninum Ásgeiri. Lagið heitir Snowblind og er hér um að ræða fyrstu smáskífu af væntanlegri plötu, Time On My Hands, sem kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins One Little Independent í október.

Sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða tónlistarmaður

Tónlistarmaðurinn Ásgeir, áður þekktur undir listamannsnafninu Ásgeir Trausti, fagnar því í ár að tíu ár eru liðin frá því fyrsta platan hans Dýrð í Dauðaþögn kom út. Í tilefni af þessum tímamótum ákvað hann að gefa plötuna aftur út og ásamt því mun hann halda stórtónleika í Eldborg, Hörpu þann 27. ágúst næstkomandi. Það er ýmislegt fleira á döfinni í tónlistarheimi Ásgeirs en þekkt íslenskt tónlistarfólk kemur til með að endurgera þekktustu lög hans á plötu sem enn á eftir að tilkynna hvenær kemur út. Blaðamaður hitti Ásgeir í kaffibolla og fékk að taka púlsinn á honum.

Afmælisútgáfa Dýrðar í dauðaþögn

Ásgeir Trausti endurgerði plötuna „Dýrð í dauða þögn“ í sérstakri afmælisútgáfu í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að hún kom upprunalega út. Afmælisútgáfan lenti í dag, á afmælisdegi kappans og inniheldur einnig fjögur áður óútgefin lög.

Britney Spears og Elton John á toppi Íslenska listans

Tónlistarfólkið Britney Spears og Elton John sendu frá sér lagið Hold Me Closer í lok ágúst við góðar viðtökur. Lagið fór í fyrsta sæti á breska vinsældarlista, náði inn á topp tíu á bandaríska Billboard listanum og situr nú í fyrsta sæti Íslenska listans á FM957.

„Victoria's Secret er gamall maður sem býr í Ohio“

Tónlistarkonan Jax situr í þrettánda sæti Íslenska listans á FM þessa vikuna með lagið Victoria's Secret. Lagið er ádeila á undirfatarisann þar sem Jax syngur meðal annars um skaðlega fegurðarstaðla og segir Victoria's Secret einfaldlega vera gamlan mann sem býr í Ohio.

Græna græna grasið nær nýjum hæðum

Breski söngvarinn George Ezra trónir á toppi Íslenska listans á FM957 þessa vikuna með lagið Green Green Grass. Lagið er að finna á plötunni Gold Rush Kid og hefur fikrað sig í átt að fyrsta sæti listans á undanförnum vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×