Tónlist

„Með því að vera föst inni í húsi fannst mér ég líka vera föst með tilfinningunum mínum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Siggy var að senda frá sér EP plötu.
Tónlistarkonan Siggy var að senda frá sér EP plötu. Aðsend

Söngkonan Siggy var að gefa út sína fyrstu plötu, Reflections, í dag. Þessi fimm laga plata dregur fram blendnar tilfinningar tónlistarkonunnar um upplifun hennar á að takast á við ástarsorg, fíkn og tilfinningarússíbanann sem því fylgdi.

Siggy heitir réttu nafni Sigurborg Sigurjónsdóttir og er fædd og uppalin í Los Angeles en hefur búið í Reykjavík síðan 2020. Hún steig inn á sjónarsviðið á Iceland Airwaves 2019 og segist alltaf hafa langaði til að vera söngkona. Tónlistin á nýju plötunni er unnin með þeim Arnari Inga eða Young Nazareth, Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni og Oddi Þórissyni. Blaðamaður tók púlsinn á Siggy.

Aðsend

Hvernig var ferlið við að semja plötuna?

Platan á sér langan aðdraganda en ég samdi megnið af henni í upphafi sóttkvíar þegar Covid var að byrja. Með því að vera föst inni í húsi fannst mér ég líka vera föst með tilfinningunum mínum.

Í gegnum árin hef ég notað söng og ljóð sem útrás fyrir sjálfa mig til að vinna úr tilfinningum og tjá mig, svo í sóttkví var mikill tími til að skapa.

Ferlið mitt fyrir þetta EP var helst þannig að ég var að finna takta sem mér líkaði vel við og samdi svo í kring um þá.

Hvaðan sækirðu innblástur fyrir hana?

Innblástur minn kemur aðallega bara með hverfulum tilfinningum, svo ég sem í rauninni bara eitthvað sem tengist því hvernig mér líður á því augnabliki. 

Hvort sem það er sorg, einmanaleiki, gleði eða eftirsjá, þá læt ég bara tilfinningar mínar ráða. 

Svo dreg ég bara sögur eða aðstæður úr fyrri reynslu og skrifa það frá mínu eigin sjónarhorni, og stundum annarra.

Tónlistarkonan Siggy leyfir tilfinningunum að ráða sköpunarferlinu.Aðsend

Hvernig koma hugmyndirnar oftast til þín og hvernig kemurðu þér í gírinn þegar þú ert að semja og syngja?

Ég enda yfirleitt með því að semja á einhverjum ókristilegum tíma á kvöldin þegar tilfinningar og hugsanir hafa tekið völdin og ég einfaldlega get ekki sofið. 

Þá dreg ég bara fram fartölvuna mína og finn takt sem mér finnst hljóma eins og mér líður þá stundina. Þá er ég bara frjáls og ætlunin er ekkert endilega að semja, alveg þangað til ég rekst á setningu sem fer virkilega í taugarnar á mér og þá byrja ég að semja út frá henni. Sum lög ganga ekki upp og önnur gera það, en þau eru öll jafn sérstök fyrir mig, því þegar ég fer til baka man ég augnablikið sem ég samdi það og hvernig mér leið. Á þann hátt finnst mér ég geta endurskoðað fortíð mína í gegnum eigin tónlist.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tónlistina?

Ég myndi segja að það sem mér finnst vera það skemmtilegasta við tónlist er lækningamáttur hennar og hvað hún getur verið huggandi.

Í gegnum lífið hefur tónlist verið hækja, eitthvað til að styðjast við, eitthvað sem kemur mér í opna skjöldu þegar mér finnst ég vera misskilin. Tónlist fyrir mig getur verið allt. 

Það er lag þarna fyrir allar tilfinningar sem ég hef fundið, sem tengjast mér og þar sem mér líður eins og ég sé ekki ein. Tónlist getur líka verið algjört ævintýri, eins og að kíkja inn í nýjan heim og finna eitthvað sem ég hef aldrei fundið áður. Tónlist fyrir mér er flótti, rétt eins og góð bók er fyrir þann sem hefur gaman af lestri. 

Það er eins konar griðastaður eða athvarf fjarri öllu og öllum. Mér finnst vera mikið frelsi í því.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×