Söguganga þar sem níutíu ár eru liðin frá fyrstu útförinni í Fossvogskirkjugarði Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2022 13:31 Frá Fossvogskirkjugarði 2. september 1932. Mikill fjöldi tók þátt í þessari fyrstu líkfylgd í garðinn sem teygði sig frá Laufásvegi upp undir Þóroddstaði í Öskjuhlíð með hátt í 50 bíla. Þjóðminjasafnið/Magnús Ólafsson Níutíu ár eru í dag liðin frá því fyrstu útförinni í Fossvogskirkjugarði og að garðurinn var þar með tekinn í notkun. Í tilefni þessa verður boðið upp á sögugöngu næstkomandi sunnudag klukkan 14:30 þar sem Stefán Pálsson sagnfræðingur mun leiða gesti um gerðinn og gera grein fyrir sögu kirkjugarðsins og völdum minningarmörkum.
Fyrsta jarðarförin Fossvogsgarður var vígður og fyrstu grafirnar teknar í honum föstudaginn 2. september árið 1932 en þá voru Gunnar Hinriksson vefari og Ólafur Þorkelsson, lagðir til hinstu hvílu í garðinum. Í tilkynningu segir að Gunnar hafi verið grafinn fyrst og teljist hann því vera vökumaður Fossvogskirkjugarðs. „Gunnar vefari, var landsþekktur fyrir störf sín að vefnaði en hann dó á Elliheimilinu Grund 87 ára en Ólafur var barn á sjöunda ári sem lést af slysförum skömmu áður. Það þótti táknrænt, að þeir sem fyrstir voru grafnir í garðinum voru öldungur og barn, fulltrúar elstu og yngstu kynslóðanna. Útförin sem gerð var frá Dómkirkjunni var mjög fjölmenn og fjöldi fólks lagði að auki leið sína suður í Fossvog til að verða vitni að þessari fyrstu jarðarför. Á eftir tveimur líkvögnum komu hátt í 50 bílar sem allir voru fullir af fólki og til marks um hvað bílalestin var löng er nefnt, að þegar líkbílarnir komu suður fyrir Þóroddsstaði, voru síðustu bílarnir niður undir Laufásvegi. Úr Fossvogsgarði.Aðsend Fullnýttur Árið 1982 var Fossvogsgarður fullnýttur og var þá öll nýgreftrun færð yfir í Gufunesgarð. Árið 1987 var bætt við svæði fyrir 3900 grafir og er garðurinn því alls 28,2 ha. með um 40 þúsund legstaði. Í dag er Fossvogsgarður aftur fullnýttur og eingöngu grafið í svæði sem frátekin eru í fjölskyldureitum auk duftkera sem lögð eru í eldri leiði skv. samkomulagi við leiðishafa. Um árabil hefur verið sérstakt svæði fyrir duftker í Fossvogsgarði og árið 2009 bættist duftgarðurinn Sólland við austar í Öskuhlíðinni vestan við Fossvogskirkju.“ Fossvogskirkja í Reykjavík.Aðsend Í garðinum er mikið af minningarmörkum sem segja sögu um gengnar kynslóðir en skipulag garðsins mótaðist af hugmyndum sem einkenndu borgarskipulag í upphafi síðustu aldar. Meðal minnismerkja og stytta í garðinum má nefna: Afsteypu af Kristlíkneski Bertels Thorvaldssen sem stendur utan við kirkjudyrnar. Minnisvarða um fóstur eftir Borghildi Óskarsdóttur á torginu framan við kirkjuna. Minnismerkið Glitfaxa eftir Einar Jónsson við hlið kirkjunnar um þá sem farist hafa í flugslysum. Minningaöldur sjómannadagsins eftir Halldór Guðmundsson arkitekt vestan Fossvogskirkju við hlið minnisvarða um óþekkta sjómanninn. Að auki eru í garðinum nokkrir grafreitir erlendra manna sem létust á eða við Ísland á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar. Sögugangan hefst við Fossvogskirkju klukkan 14:30 á sunnudag, en auk Stefáns verður Kristján Linnet, skrúðgarðyrkjumeistari og starfsmaður garðsins, með í för.
Reykjavík Menning Tímamót Kirkjugarðar Mest lesið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Dóttir De Niro kemur út sem trans Lífið Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Áskorun Forsalan sögð slá öll fyrri met Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Fleiri fréttir „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira