Innlent

Sýna geitur í húsdýragarði og selja gestum svo geitaost beint frá býli

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jóhannes Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum í Fljótum, að mjólka geiturnar.
Jóhannes Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum í Fljótum, að mjólka geiturnar. Sigurjón Ólason

Bændur á einu stærsta sauðfjárbúi við austanverðan Skagafjörð eru búnir að stofna húsdýragarð og bjóða gestum að kaupa geitaost beint frá býli. Brúnastaðir í Fljótum eru fyrsti og eini bær landsins sem framleiðir eigin geitaosta.

Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt beint úr geitahjörð á Brúnastöðum og rætt við bændurna, þau Hjördísi Leifsdóttur og Jóhannes Ríkharðsson. En hvernig nýta þau geitastofninn, sem núna telur um sjötíu geitur?

„Við erum að mjólka og gera geitaosta heima á býlinu. Hvað varðar geitamjólk þá erum við frumkvöðlar að því að gera geitaosta heima á býlinu sjálfu. Við erum þau fyrstu og einu ennþá á Íslandi,“ segir Hjördís.

Stillt upp fyrir beina útsendingu úr geitahjörð í Fljótum.Sigurjón Ólason

Þau eru jafnframt komin með húsdýragarð.

„Geiturnar eru alveg einstaklega mannelsk dýr og hluti af þessum hópi hérna er í fullri vinnu allt sumarið í dýragarðinum, ásamt fleiri dýrum. Við erum með íslensku flóruna; refi, svín, hunda, hesta, kindur, hænur og kalkúna. 

Og þetta er mjög vinsælt. Fjölskyldurnar koma hérna og börnin fá að kynnast dýrunum í návígi og klappa. Þannig að þetta virkar mjög vel,“ segir Jóhannes.

„Við erum með litla sveitabúð þar sem við erum að bjóða geitaostana okkar og allar afurðir býlisins líka,“ segir Hjördís.

Nánar í frétt Stöðvar 2 sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Segir lúxusferðamenn þýða minni átroðning en miklu meiri tekjur

Lúxushótel í Fljótum er orðið næst fjölmennasta fyrirtæki Skagafjarðar á eftir Kaupfélaginu. Hótelstjórinn hvetur til þess að Íslendingar leggi meiri áherslu á að fá efnaðri ferðamenn til landsins, það þýði minni átroðning en miklu meiri tekjur.

Skemmtilegur dýragarður á Skorrastað

Geiturnar, kisurnar, kanínurnar, hundurinn, hænurnar, kindurnar og hestarnir á bænum Skorrastað við Neskaupstað vekja alltaf mikla ánægju hjá gestum en þar er rekin dýragarður og ferðaþjónusta. Bóndinn á bænum segist ekki sakna þess að komast ekki til útlanda á sumrin, Ísland sé alltaf best.

Erfiður vetur að baki í Fljótunum

Þrátt fyrir að erfiður vetur sé nú að baki eru heimamenn í Fljótunum í Skagafirði enn að glíma við afleiðingar hans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×