Gylfi mætti spila fótbolta hvar sem er en gæti þurft að bíða niðurstöðu lengi enn Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2022 09:01 Gylfi Þór Sigurðsson faðmar frænku sína, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, eftir leik Íslands og Frakklands á EM í júlí. vísir/vilhelm Nú þegar þrettán mánuðir eru liðnir frá því að knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða ungmenni, er enn óljóst hver niðurstaða málsins verður. Biðin eftir niðurstöðu gæti enn verið talin í árum.
Farbanni Gylfa lauk fyrir mánuði síðan og lögreglan í Manchester verst allra frekari fregna af stöðu máls hans. Páll Kristjánsson, lögfræðingur og formaður knattspyrnudeildar KR, segir ljóst að nú sé þess aðeins beðið hvort að ákæra verði gefin út í málinu eða ekki. Sú bið geti hins vegar orðið mjög löng en að þangað til sé Gylfa í raun frjálst að spila fótbolta hvar sem það bjóðist. „Farbannið er fallið niður og hann má því spila fótbolta hvar sem hann vill í heiminum. Svo er annað mál hvort að eitthvert félag vilji semja við hann,“ segir Páll. Rétt er þó að taka fram að ekki hefur fengist staðfest hjá lögreglu að farbannið hafi fallið niður en í öll þau skipti sem það hefur verið framlengt hingað til hefur hún staðfest það. Nýtt félag þyrfti að sætta sig við og semja um óvissuna Samningur Gylfa við Everton rann út í lok júní. Óljós orðrómur var um það í sumar í tyrkneskum miðlum að Galatasaray hefði gert honum tilboð. „Verði hann ákærður þarf hann að mæta fyrir dóm og svara til saka. Niðurstaða í slíku máli mun hafa veruleg áhrif, enda yrði þá tekist á um sekt eða sýknu. Sem stendur er Gylfa hins vegar frjálst að semja við hvaða félag sem er en félagið þarf að sætta sig við og semja um þessa óvissu,“ segir Páll. Gylfi, sem er 32 ára gamall, hefur að mestu haldið sig til hlés frá því að hann var handtekinn en lét þó sjá sig á leikjum Íslands á EM kvenna í síðasta mánuði. Að öðru leyti er lítið vitað um stöðu máls hans. Vísir leitaði álits lögfræðings á stöðu málsins og segir Páll að miðað við önnur kynferðisbrotamál virðist það í nokkuð hefðbundnum farvegi. Ekki óvenjulegur afgreiðslutími „Ef þetta væri íslenskt mál þá væri þetta alla vega ekkert óeðlilegur afgreiðslutími á máli þótt deila megi um það hvort hann sé ásættanlegur. Ég held að meðalafgreiðslutími í kynferðisbrotamálum hjá embætti Héraðssaksóknara sé í kringum 170 dagar, og á þá eftir að taka tilit til rannsóknar lögreglu og meðferðar hjá dómstólum. Sakborningar og brotaþolar bíða þá bara í von og óvon, eins og virðist vera í þessu máli Gylfa,“ segir Páll. Gylfi var á sínum tíma úrskurðaður í farbann sem svo var endurtekið framlengt þar til að því lauk fyrir mánuði síðan og hefur lögregla ekki tjáð sig um stöðu málsins síðan. Páll varar við að lesa of mikið í aðgerðir lögreglunnar enda lítið vitað um málsatvik og lögreglan verst frétta. Hins vegar hafi ekki verið gripið til alvarlegustu þvingungarúrræða í máli Gylfa, eins og til dæmis gæsluvarðhalds, og kunni það að veita einhverjar vísbendingar. Það var til að mynda gert í máli annars knattspyrnumanns, Benjamins Mendy, sem nú er réttað yfir vegna gruns um átta nauðganir og fleiri kynferðisbrot. Hins vegar sé ómögulegt að segja til um hugsanlegan refsiramma vegna meints brots Gylfa þar sem ekki sé vitað nákvæmlega hvers eðlis málið sé. „En sú staðreynd hann sé laus úr farbanni og lögreglan telji ekki nauðsynlegt að tryggja nærveru hans lengur inn refsilögsögunnar gefur ágætis fyrirheit fyrir Gylfa um hverjar lyktir endanlega verða.“ Segir biðina enn geta lengst um ár eða tvö Ýmsir hafa furðað sig á því hve langan tíma málið tekur en Páll bendir á að biðin eftir niðurstöðu geti enn verið talin í árum. „Þegar þvingunaraðgerðum er beitt, eins og farbanni og gæsluvarðhaldi, þá vill lögreglan vinna eins mikla rannsóknarvinnu og hægt er á þeim tímapunkti. Eftir það er það bara svo algengt að mál „sofni“ hjá ákærusviðinu, þannig að það gæti enn þurft að bíða heillengi eftir niðurstöðu. Rannsóknin sem slík rýfur fyrningu, svo að málið fyrnist ekki á meðan það er í þessum farvegi. Ég held að það sé alveg vonlaust að segja til um hversu löng biðin verður í viðbót. Við gætum þurft að bíða 1-2 ár enn,“ segir Páll.
Fótbolti Mál Gylfa Þórs Sigurðssonar Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Fleiri fréttir Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Sjá meira