„Þetta er fjögurra laga rapp plata sem ég er búinn að vera vinna í síðan nóvember á síðasta ári. Platan er um markmiðin mín í bransanum, hindranir og fake fólk. Á sama tíma er ég að reyna halda öllu jákvæðu þótt ég verði stundum reiður eða verði vonsvikinn. Ég elska stemningu og vil aðallega bara hafa stemningu í lögunum,“ segir Daníel.
Vinnur allt sjálfur
Daníel semur lögin og textana sjálfur ásamt því að pródúsera, mixa og mastera. Hann segir innblásturinn koma til sín í gegnum vinnuna.
„Ég sest við tölvuna heima hjá mér og byrja á því að vinna í beat-i, ég get oft verið að vinna fimm á dag og ekki fílað nein af þeim.
Svo geri ég eitt beat sem kemur mér í stuð og finn þá bara strax innblástur til að gera texta við beat-ið.
Ég pródúsera allt sjálfur, mixa og mastera líka. Lagið Ekki í lagi var reyndar gert með hjálp tveggja vina minna, Hrafns Óla og Daníel Birnis, á tónlistarnámskeiði í Tónhyl. Annars hef ég unnið flest sjálfur, nema einn master var gerður af frænda mínum.“
Útkoman skemmtilegust
Daníel segist fyrst hafa byrjað að hlusta almennilega á tónlist árið 2018 þegar hann kynntist tveimur nýjum vinum sínum.
„Þeir kynntu mig eiginlega bara fyrir tónlist. Út frá því kviknaði áhugi á að gera tónlist. Svo byrjaði ég að gera beats í lok árs 2019, byrjaði að rappa 2020 en gaf ekki út mín eigin rapplög fyrr en í október 2020.“
Hann segir það skemmtilegasta við að gera tónlist vera útkomuna.
„Ég spilaði einu sinni á sumarhátíð í skólanum mínum og það að koma fram fyrir hóp áhorfenda er það skemmtilegasta sem ég geri, að peppa fólk og koma þeim í stuð.
Allt sem mig hefur langað að gera hefur alltaf verið tengt því að koma fram á sviði.“
Gekk á milli fólks með QR kóða
Aðspurður hvert hann stefni í tónlistarheiminum segir Daníel einfaldlega:
„Ég er með mjög skýra sýn og ég sé enga aðra leið en að ég stefni beint á toppinn.
Það er enginn að hjálpa mér á bak við tjöldin, ég gef þetta út sjálfur og ég prómóta þetta sjálfur. Á Þjóðhátíð var ég að fara á milli fólks með QR kóða að leyfa þeim að skanna. Ég er líka búinn að auglýsa mig mikið á TikTok og með fyrri útgáfunni minni, grín laginu Gucci Bolur þá náði ég að koma laginu í eitt af mest spiluðu lögum landsins á Spotify á útgáfudaginn.“
Feimni er ekki vandamál hjá Daníel og mikilvægt er að hafa trú á sér þegar maður ætlar að koma sér á framfæri.
„Það er enginn að fara að gera þetta fyrir mig þannig að ég verð að gera þetta sjálfur.“
Hér má finna nýju plötuna í heild sinni: