Tónlist

Frumsýning á nýrri útgáfu af Lífið er yndislegt

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Klara og Hreimur syngja saman nýja útgáfu af Lífið er yndislegt en Hreimur er einmitt söngvari upprunalega lagsins.
Klara og Hreimur syngja saman nýja útgáfu af Lífið er yndislegt en Hreimur er einmitt söngvari upprunalega lagsins. Hafþór Karlsson

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á glænýrri útgáfu af Lífið er yndislegt þar sem tónlistarfólkið Klara Elias og Hreimur syngja órafmagnaða útgáfu af þessu sögulega Þjóðhátíðarlagi.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Klara kemur til með að frumsýna einstakar útgáfur af klassískum Þjóðhátíðarlögum á Lífinu á Vísi alla fimmtudaga fram að Þjóðhátíð. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá þessu verkefni.

Hvernig kviknaði hugmyndin að því að sameina krafta ykkar?

Ég lagði til við Ölgerðina og Tuborg að við myndum framleiða aðeins öðruvísi kynningarefni þetta árið og eitthvað sem myndi gefa fólki nýjar útgáfur og upplifun af þjóðhátíðarlögum sem þau elska. Ég ákvað að breyta þeim í dúetta, draga fram rafmagnsgítar og gera live og tiltölulega órafmagnaðar útgáfur sem er hægt að setja á þegar fólk er að koma sér í gír fyrir þjóðhátíð. Mig langaði auðvitað að fá Hreim til að taka með mér Lífið er yndislegt og Sverri Bergmann og Halldór Gunnar til að taka með mér Ástin á sér stað. Síðan tek ég nýja LIVE órafmagnaða útgáfu af Eyjanótt. 

Þessar útgáfur munu verða frumsýndar á Lífinu á Vísi í hádeginu á fimmtudögum fram að Þjóðhátíð.

Hvernig gekk samstarfið?

Hreimur er náttúrulega bara svo yndislegur að ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi átt í neinu nema góðu samstarfi við hann. Það var allavega heiður fyrir mig að fá að flytja þetta iconic lag með honum. Ég er bara montin að hann var til í að vera með í þessu verkefni til í að leyfa mér að setja lagið í „nýjan kjól“.

Stella Rósenkranz

Megum við búast við fleiri dúettum frá ykkur?

Það er aldrei að vita! Það má allavega búast við fleiri dúettum frá mér því ég og Sverrir Bergmann ætlum að syngja fyrir ykkur lagið Ástin á sér stað í næstu viku, sem verður frumflutt á Vísi í hádeginu.


Tengdar fréttir

Enn bætist í dagskrána á Þjóðhátíð

Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún, Ragga Gísla, Hreimur, Aldamótatónleikarnir og Herbert Guðmundsson bætast á sívaxandi lista þeirra sem munu koma fram á Þjóðhátíð í ár. Þetta verður frumraun Herberts í dalnum. 

Klara Elias frumflutti Þjóðhátíðarlagið 2022

Söngkonan Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem heitir Eyjanótt, kom út fyrr í dag á allar helstu streymisveitur og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun.

Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár

Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja 2022 er Klara Elias söngkona og lagahöfundur. Aðeins einu sinni áður hefur hið opinbera þjóðhátíðarlag verið samið og flutt af konu og var það lagið og var það lagið Sjáumst þar eftir Röggu Gísla árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×