Veður

Lægð nálgast úr suðri og fer að rigna í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er að hiti á landinu verði á bilinu níu til átján stig, hlýjast norðaustantil.
Spáð er að hiti á landinu verði á bilinu níu til átján stig, hlýjast norðaustantil. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir sunnan golu eða kalda og skúrum í dag, en yfirleitt bjartviðri á norðaustanverðu landinu.

Spáð er að hiti verði á bilinu níu til átján stig, hlýjast norðaustanlands.

Lægð nálgast svo úr suðri í nótt og fer að rigna sunnantil.

„Heldur vaxandi norðlæg átt og rigning á morgun, jafnvel talsverð á Norður- og Austurlandi. Norðan 10-15 annað kvöld og úrkomulítið sunnanlands. Hiti 7 til 15 stig, mildast syðst,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag (lýðveldisdagurinn): Norðaustan 5-10 m/s og rigning, einkum norðan- og austanlands. Vaxandi norðanátt síðdegis og dregur úr vætu sunnan heiða. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnantil.

Á laugardag: Norðvestan og norðan 10-18, en hvassara í vindstrengjum á Suðaustur- og Austurlandi. Rigning um landið norðaustanvert með hita 5 til 9 stig, en bjart með köflum annars staðar og hiti 8 til 15 stig. Dregur úr vindi eftir hádegi og styttir smám saman upp.

Á sunnudag: Suðvestanátt, víða 8-13 m/s. Lengst af bjartviðri um landið austanvert, en súld eða dálítil rigning vestantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austanlands.

Á mánudag: Fremur hæg breytileg átt og úrkomulítið, en líkur á þoku við ströndina. Hiti 8 til 16 stig.

Á þriðjudag (sumarsólstöður): Breytileg og síðar norðlæg átt og súld eða rigning með köflum. Hiti 7 til 13 stig.

Á miðvikudag: Norðanátt, skýjað og dálítil væta norðan og austanlands. Fremur svalt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×