Fótbolti

Al­fons spilað nánast sleitu­laust undan­farna fjór­tán mánuði

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Þór Viðarsson gefur fyrirmæli gegn Albaníu á meðan Alfons Sampsted gerir sig kláran í að taka innkast.
Arnar Þór Viðarsson gefur fyrirmæli gegn Albaníu á meðan Alfons Sampsted gerir sig kláran í að taka innkast. Vísir/Diego

Alfons Sampsted fær verðskuldað frí er samherjar hans í íslenska landsliðinu etja kappi við San Marínó síðar í dag. Um er að ræða vináttulandsleik í fótbolta.

Hægri bakvörðurinn Alfons Sampsted hefur leikið báða leiki Íslands í Þjóðadeildinni - ytra gegn Ísrael og Albaníu á Laugardalsvelli - frá upphafi til enda. Hann á fríið svo sannarlega skilið en hann hefur ekki beint fengið marga frídaga undanfarin misseri þökk sé góðum árangri innan vallar.

Alfons hefur verið í lykilhlutverki hjá norska meistaraliðinu Bodø/Glimt síðan hann gekk í raðir félagsins snemma árs 2020. Síðan þá hefur gengi hans og liðsins verið lygilegt. Noregsmeistarar tvö ár í röð og þá fór liðið alla leið í 8-liða úrslit Sambandsdeildar Evrópu.

Alfons Sampsted í baráttunni gegn Roma en hann mætti þeim alls fjórum sinnum á síðustu leiktíð.Getty

Gott gengi í Evrópu er ástæðan fyrir þeirri þreytu sem Alfons segir komna í mannskap liðsins en Bodø/Glimt hefur ekki byrjað yfirstandandi tímabil vel. Meistararnir sitja í 8. sæti með 13 stig eða 11 stigum minna en topplið Lillestrøm sem hefur leikið einum leik meira.

Bodø/Glimt hóf síðasta tímabil í Norgi þann 9. maí og lauk því 12. desember. Þó liðið hafi eflaust fengið smá frí yfir jólin þá hafði Alfons varla tíma til að hitta fjölskyldu sína þar sem hann var hluti af landsliðshóp Íslands sem mætti Suður-Kóreu og Úganda í janúar á þessu ári. 

Um miðjan febrúarmánuð mætti Bodø/Glimt skoska stórveldinu Celtic í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. Skotarnir reyndust lítil fyrirstaða en Albert Guðmundsson og þáverandi liðsfélagar í AZ Alkmaar reyndust töluvert erfiðari viðureignar. Fór einvígi liðanna alla leið í framlengingu þar sem Alfons reyndist hetjan.

Evrópuævintýri Bodø/Glimt endaði loks gegn Roma sem átti harma að hefna eftir ótrúlegan 6-1 sigur norska liðsins í riðlakeppninni síðasta haust. Fór það svo að Roma fór alla leið og vann keppnina. 

Alfons fór yfir þessa ótrúlegu lífsreynslu og þreytuna sem herjar nú á leikmannahóp liðsins í stuttu spjalli við Fótbolti.net nýverið

„Ætli þetta sé ekki blanda af nokkrum þáttum. Klárlega mikil þreyta, við byrjum tímabilið snemma og höfum spilað lengi. Þá hafa verið meiðsli og veikindi í leikmannahópnum. Vona að þetta landsleikjahlé geti verið ákveðinn núllpunktur fyrir hina leikmenn liðsins,“ sagði Alfons.

Ofan á allt þetta hefur Bodø/Glimt verið duglegt að selja lykilmenn á undanförnum tveimur árum og því erfitt að viðhalda sama árangri ár eftir ár. Takandi þetta með í reikninginn skyldi engan undra að það sé aðeins farið að hægjast á Alfonsi eftir að hafa spilað nær samfleytt síðan í maí á síðasta ári.

Hinn 24 ára gamli Alfons hefur eignað sér hægri bakvarðarstöðu íslenska landsliðsins að undanförnu en alls hefur hann leikið 12 A-landsleiki sem og 52 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Alfons Sampsted til varnar í leiknum gegn Albaníu í gærkvöld. Hann fer ekki til San Marínó.vísir/Diego

Tengdar fréttir

„Kröftugt högg á trýnið og vantar annan skóinn“

Alfons Sampsted fékk olnbogaskot í andlitið í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar í fótbolta í gær. Hann fékk myndarlegt glóðarauga en segist ekki koma til með að missa af mínútu með Bodö/Glimt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×