Tónlist

Frumsýning á tónlistarmyndbandi Reykjavíkurdætra

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Reykjavíkurdætur frumsýna nýja útgáfu af tónlistarmyndbandi við lagið Turn This Around hér á Vísi.
Reykjavíkurdætur frumsýna nýja útgáfu af tónlistarmyndbandi við lagið Turn This Around hér á Vísi. Aðsend

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýju tónlistarmyndbandi frá hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum.

Um er að ræða nýja og lengri útgáfu af laginu Turn This Around sem Reykjavíkurdætur fluttu í Söngvakeppninni í ár. Þær lentu eftirminnilega í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Systur.

Hljómsveitin hélt nýverið þrenna tónleika í Iðnó en Reykjavíkurdætur höfðu ekki haldið eigin tónleika í Reykjavík í rúmlega þrjú ár. „Það var bara ólýsanleg stemmning og geggjað að halda okkar tónleika hérna heima eftir allan þennan tíma. Við vorum með tvo fjölskyldutónleika sem voru alveg magnaðir og svo eina loka partý tónleika um kvöldið,“ segir Þura Stína Reykjavíkurdóttir.

„Þegar við sömdum Turn This Around þá gerðum við strax útgáfu af laginu án þess að vera að takmarka okkur við sex raddir, þar sem við erum átta í hljómsveitinni.

Þegar það kom að því að skjóta tónlistarmyndbandið tókum við þessi tvö auka vers því upp sem voru upphaflega skrifuð inn í handritið af myndbandinu. Þetta var hins vegar á Covid tímum og ég beið öll jól og áramót eftir að missa fólk úr teymi og hljómsveit í smit en allt kom fyrir ekki, fyrir utan eina manneskju úr öllu þessu stóra teymi sem var okkar eigin Karítas. Ég skrifaði hana því inn í sjónvarp og við tókum hana upp í green screen í okkar sjónræna heimi, sem María Guðjohnsen býr svo listilega til fyrir okkur seinna meir.

Við erum því glaðar að gefa lagið og myndbandið loksins út í sinni fullu mynd og getum ekki beðið eftir öllum tónleikum sumarsins þar sem við munum að sjálfsögðu taka lagið okkar aftur og aftur í fullri lengd, “segir Þura.

Hér má sjá nýja tónlistarmyndbandið:

Klippa: Reykjavíkurdætur - Turn This Around (lengri útgáfa)

,Lagið andar bara betur. Auka erindin gera það að verkum að það er lengra í brúna og þá verður droppið yfir í viðlagið enn betra. Ég held að fólk muni kunna að meta þessa útgáfu, við erum búnar að prófa þetta nokkrum sinnum á tónleikum og fólk er að missa sig,“ bætir Blær Reykjavíkurdóttir við.

Það er margt spennandi á döfinni hjá Reykjavíkurdætrum.

„Við erum að fara inn í stappað sumar af tónleikum bæði á tónlistarhátíðum í Evrópu sem og á Íslandi og hlökkum mikið til,“ segir Þura að lokum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×