Erlent

Vaktin: Ungverjaland lýsir yfir neyðarástandi

Hólmfríður Gísladóttir, Samúel Karl Ólason, Tryggvi Páll Tryggvason og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Viktor Orban er forsætisráðherra Ungverjalands.
Viktor Orban er forsætisráðherra Ungverjalands. Getty

Í dag eru sléttir þrír mánuðir frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst. Eyðileggingin í Úkraínu er gífurleg og þúsundir hafa fallið, bæði hermenn og óbreyttir borgarar. Þá hafa rússneskir hermenn verið sakaðir um fjölmörg ódæði og stríðsglæpi.

Rússar gerðu upprunalega innrás í Úkraínu úr öllum áttum en sókn þeirra að Kænugarði var stöðvuð. Nú leggja þeir mesta áherslu á að ná tökum á Donbas-hérað og suðurhluta Úkraínu.

Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag.

Helstu vendingar:

  • Bardagar í austurhluta Úkraínu gætu ráðið örlögum Úkraínu, samkvæmt Oleksandr Motuzyanyk, talsmanni Varnarmálaráðuneytis Úkraínu. Hann sagði í dag að þrýstingurinn á úkraínska hermenn hefði aldrei verið meiri en nú og ástandið í austri væri gífurlega erfitt.
  • Úkraínumenn skutu niður rússneska orrustuþotu á dögunum en henni var flogið af fyrrverandi herforingja í rússneska flughernum. Sá hét Kanamat Botashev og dó þegar Su-25 þota hans var skotin niður yfir Luhansk á sunnudaginn.
  • Alexei Navalní, einn helsti pólitíski andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur gagnrýnt þann síðarnefnda harðlega í morgun. Hann segir Pútín vera galinn og segir hann hafa vaðið út í heimskulegt stríð þar sem saklausu fólki, bæði frá Úkraínu og Rússlandi, sé slátrað.
  • Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir Rússa hyggjast styrkja tengslin við Kína enn frekar, þó hann sé enn opinn fyrir því að endurnýja samskiptin við Vesturlönd, sem hann sakar um að stunda áróður gegn Rússum.
  • Lavrov segir stjórnvöld í Rússlandi nú vinna að því að finna áreiðanlega birgja til að versla við og að í framtíðinni muni þau aðeins reiða sig á „áreiðanleg“ ríki til að vera ekki háð Vesturlöndum.
  • Hinn afar umdeildi forseti Fillippseyja, Rodrigo Duterte, hefur gagnrýnt Vladimir Pútín Rússlandsforseta fyrir að myrða almenna borgara í Úkraínu. „Ég drep glæpamenn, ég drep ekki börn og eldra fólk,“ sagði Duterte eftir að hafa viðurkennt að báðir hefðu leiðtogarnir verið kallaðir morðingjar.
  • Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna stríðsins í Úkraínu.

Hér má finna vakt gærdagsins.

Ef vaktin birtist ekki hér að neðan gæti þurft að hlaða síðuna aftur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×