Menning

Alsæla mætir stanslausri truflun og blætismenning finnur tengingu við garðyrkju

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Mia Ghabarou og Áslaug Magnúsdóttir með verkið Pamela Angela.
Mia Ghabarou og Áslaug Magnúsdóttir með verkið Pamela Angela. Ásmundarsalur

Ásmundarsalur verður með opnun á tveimur listasýningum í dag klukkan 14:00. Frítt er inn og öll eru velkomin.

Önnur sýningin ber nafnið Pamela Angela Mellem Himelen og Haven. Pamela Angela er að sögn forsvarsmanna Ásmundarsals kraftmikið fyrirbæri þar sem alsæla mætir stanslausri truflun og ágengi er umvafin hinu rómantíska en verkefnið er samstarf Miu Ghabarou og Áslaugar Magnúsdóttir. Nálgun þeirra er margþætt en þær hafa bakgrunn í klassískri tónlist og raftónsmíðum, gjörningalist og dramatúrgíu, þar sem hjartasorgir mæta akúsmatískri tónlist.

Pamela Angela tekur sig vel út í Ásmundarsal.Aðsend

Tónlist og skúlptúr

Mellem Himelen og Haven er síðasta stykkið í vængjaseríu Miu og Áslaugar, þar sem myndlíkingar verða að raunveruleika. Í sýningartextanum segir að verkið sé innsetning byggð á tveimur ólíkum einingum; skúlptúr og tónflutningi. Skúlptúrinn er spilanlegt hljóðfæri búið til úr bílhurð sem gefur rými til að túlka tónlistina eftir að hún hefur verið stöðvuð. Tónlistin hefur leikræna eiginleika og er blanda af post-folk, hávaða, autotune og uppleystum laglínum ástarsorgar. Ferðalag bílhurðarinnar frá ruslahaug í Danmörku til bílakirkjugarðs á Íslandi fær viðkomu í Ásmundarsal. Hljóðfærasmíði er í höndum Henrik Sandberg Ballowitz.

Kink, blæti, menn og náttúra

Listakonan Brák Jónsdóttir stendur fyrir hinni sýningunni sem kallast DÝPRA/Deeper.

Brák Jónsdóttir og Þórir Hermann Óskarsson við uppsetningu á sýningunni Dýpra.Aðsend

Brák er fædd árið 1996 og útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks, bókverks, skúlptúrs og gjörnings, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni, fantasíu og femínisma.

Á sýningunni Dýpra/Deeper kannar Brák snertifleti blætismenningar og garðyrkju, manns og náttúru, sársauka og unaðar, í þeim tilgangi að nálgast náttúruna á hátt sem ögrar hefðbundnum hugmyndum um hvernig menning og náttúra mætast. Sýningin byggir á rannsókn listamannsins á sambandi líkama og gróðurs. Brák leikur sér að hugmyndum garðyrkjunnar um beislun náttúrunnar innandyra en sýningin teygir anga sína einnig út í garð, á sameiginlegt yfirráða svæði manns og náttúru. Inni hanga ýmis verkfæri og segir listakonan að erfitt sé að sjá hvort þau eru ætluð til ástarleikja eða garðyrkju, enda þurfi annað ef til vill ekki að útiloka hitt.

Sýningin Pamela Angela stendur til 6. júní og sýningin Dýpra stendur til 10. júlí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×