Tónlist

Breska Eurovision stjarnan mætt á íslenska listann

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sam Ryder frá Bretlandi sló í gegn í Eurovision.
Sam Ryder frá Bretlandi sló í gegn í Eurovision. EBU

TikTok stjarnan Sam Ryder sló í gegn í Eurovision í ár þar sem hann keppti fyrir hönd Bretlands og hreppti annað sætið. Lagið hans Space Man skýst beint í sjötta sætið á íslenska listanum sína fyrstu viku á lista.

Allar líkur eru á því að þessi tónlistarmaður muni senda meira efni frá sér á næstu misserum en hann sló upphaflega í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann söng ábreiður af lögum annarra. 

Eurovision var ríkjandi þema á íslenska listanum þessa vikuna, þar sem sænska söngkonan Cornelia Jakobs var meðal annars kíkt inn sem líkleg til vinsælda með Eurovision lagið Hold Me Closer. Gulu úlfarnir í Subwoolfer frá Noregi sitja svo í tuttugasta sæti með framlag Noregs í ár, Give That Wolf A Banana.

FM95Blö og Aron Can tróna enn á toppi listans með lagið Aldrei toppað og Farruko fylgir fast á eftir með dans lagið Pepas.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00-16:00 á FM957.

Hér má sjá íslenska listann í heild sinni:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Mætt á toppinn og verður því „Aldrei toppað“

Lagið „Aldrei toppað“, flutt af FM95Blö og Aroni Can, skipar fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna. Tíu ára afmælishátíð FM95Blö fór fram með pomp og prakt í gærkvöldi og hefur lagið verið á stöðugri siglingu upp á við að undanförnu.

Sjö íslensk lög inn á topp tíu

Íslenski listinn er mikill aðdáandi íslenskrar tónlistar enda hefur tónlistarfólk landsins verið að gera öfluga hluti.

Dansgleðin eykst í takt við hækkandi sól

Tónlistarmaðurinn Farruko trónir á toppi íslenska listans þessa vikuna með lagið Pepas. Lagið kom út síðastliðið sumar og er skothelldur danssmellur sem flæðir vel og býr yfir kröftugu viðlagi sem er næstum ómögulegt að dansa ekki við.

„Fólk var að rífast um það hver Húgó væri á meðan að ég sat bara beint fyrir framan þau“

Tónlistarmaðurinn Hugo skipar þriðja sæti íslenska listans á FM þessa vikuna með lagið Farinn. Hugo var valinn Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og hefur vakið mikla athygli fyrir grímuna sem hann klæðist hvert skipti sem hann kemur fram. Enginn virðist vita hver raunverulegi maðurinn sé á bak við Hugo. Blaðamaður hafði samband við Hugo og tók púlsinn á honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×