Tónlist

Vel heppnuð æfing hjá íslenska hópnum en tæknivandamál hjá Corneliu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Elín Eyþórsdóttir hljómaði óaðfinnanlega á æfingu íslenska hópsins og negldi hverja einustu nótu.
Elín Eyþórsdóttir hljómaði óaðfinnanlega á æfingu íslenska hópsins og negldi hverja einustu nótu. EBU

Rétt í þessu kláruðu Systur sína fyrstu formlegu æfingu á sviðinu fyrir lokakvöld Eurovision. Rennsli þeirra gekk mjög vel og hljómuðu systkinin virkilega vel á sviðinu.

Blaðamenn eru viðstaddir æfinguna og er skemmtileg stemning í höllinni. 

Tveimur lögum á eftir Íslandi er það Svíþjóð sem á sviðið. Söngkonan Cornelia Jakobs er fulltrúi Svíþjóðar í ár með lagið Hold Me Closer. Eitthvað tækniklúður var í upphafi æfingar Corneliu og þurfti hún að hætta mjög fljótt að syngja. Hún sat á sviðinu í nokkrar mínútur og gat svo byrjað aftur á atriði sínu frá byrjun. Seinni tilraunin gekk áfallalaust fyrir sig og hljómaði söngkonan ótrúlega vel. Henni er spáð mjög ofarlega í keppninni. 

Systur stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision á laugardaginn.EBU

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

Systur rísa en stjarna Úkraínu skín langskærast

Framlag Íslands í Eurovision er í tuttugasta sæti meðal veðbanka yfir þær þjóðir sem líklegastar eru til að bera sigur úr býtum annað kvöld. Fátt getur komið í veg fyrir sigur Úkraínu, ef marka má veðbanka að minnsta kosti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×