Matur

Hafragrauturinn sem slegið hefur í gegn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríksdóttir er pistlahöfundur á Lífinu á Vísi. Hún hefur starfað við hreyfingu frá 18 ára aldri. 
Anna Eiríksdóttir er pistlahöfundur á Lífinu á Vísi. Hún hefur starfað við hreyfingu frá 18 ára aldri.  Samsett

Anna Eiríksdóttir skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu á Vísi. Í pistli dagsins deilir hún hugmyndum af uppskriftum fyrir hafragraut. Við gefum henni orðið. 

Hafragrautur er hollur og góður og hægt að gera allskonar ólíkar útgáfur af honum. Ég ætla að deila með ykkur þremur ólíkum útgáfum af graut þar sem hafraflögur eru uppistaðan. Hafraflögurnar eru meðal annars uppspretta flókinna kolvetna og trefja og innihalda þar að auki ýmiss vítamín og steinefni. Grunnurinn er því afar góður.

Allar uppskriftirnar og margar fleiri má finna á síðunni Anna Eiríks.

Ofnbakaður hafragrautur í ýmsum útfærslum hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum undanfarið en hérna deili ég með ykkur minni útgáfu. 

Bakaðir hafrar

Bakaður hafragrautur er að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum þessa dagana og auðvitað varð ég að prófa eins og allir hinir. Þessi uppskrift er einföld og góð sem smá vanillufíling en það er hægt að leika sér með endalausar útfærslur sem ég á eflaust eftir að deila með ykkur!

Fyrir: 1

Undirbúningur: 5 mínútur

  • 1 banani
  • 1 egg
  • 1 dl haframjöl
  • 1/2 dl möndlumjólk
  • 1/4 tsk vínsteinslyftiduft
  • (Vanilluprótein ef vill)
  • Smá Akasíu hunang og ber á toppinn

Aðferð:

Stappið bananann vel og hrærið egginu saman við. Bætið haframjölinu og lyftiduftinu við og hrærið möndlumjólkinni svo varlega saman við. Setjið í litla eldfasta skál og bakið í ofni við 175° í um það bil 10 til 12 mínútur.

Toppið með smá akasíu hunangi ef vill og berjum og njótið vel.

Anna Eiríks

Það er líka mjög sniðugt að útbúa graut og láta hann standa í ísskáp yfir nótt og borða daginn eftir og þá er chia fræjum oft bætt við en chia fræ eru afar næringarrík, þau eru til dæmis stútfull af próteinum, omega 3 fitusýrum og andoxunarefnum. Hérna er einföld og góð uppskrift af slíkum graut.

Kaldur hafragrautur

Þessi grautur er svo mikil snilld því það þarf ekki að elda hann heldur útbúa hann kvöldinu áður og geyma hann svo í ísskáp yfir nótt og þá er hann tilbúinn morguninn eftir. Hann er fullkominn sem nesti í vinnuna eða skólann og eins ef maður er á hraðferð á morgnana og nennir engu veseni. Hann er hollur og dásamlega góður.

Fyrir: 1

Undirbúningur: 5 mínútur

Innihald:

  • 1 1/2 dl tröllahafrar
  • 2 dl möndlumjólk
  • 1 msk chia fræ
  • 1/2 dl lífrænt kókosmjöl
  • 2 góðar msk grísk jógúrt (mér finnst með vanillu og kókos frá Örnu æði)
  • Smá skvetta Akasíu hunang
  • Hindber á toppinn

Aðferð:

Blandið öllu saman í glerkrukku og hrærið vel. Setjið smá Akasíu hunang ofan á og svo hindber (eða þau ber sem þið eigið til). Setjið krukkuna inn í ísskáp og látið standa yfir nótt. Einfaldara gerist það ekki!

Anna Eiríks

Síðast en ekki síst deili ég með ykkur frábærum graut sem er soðinn í potti en er ekki alveg þessi hefðbundni grautur sem flestir þekkja en alveg dásamlega góður. Njótið vel!

Kókosgrautur

Þessi grautur er dásamleg útgáfa af hafragraut og í rauninni jafn góður kaldur daginn eftir. Hafragrautur er saðsamur og gefur góða orku fyrir daginn og því varla hægt að byrja daginn betur. Ég fékk hugmyndina að þessum graut frá ómótstæðilegu Ellu (Deliciously Ella) sem mér finnst alltaf með svo girnilegar og hollar uppskriftir.

Fyrir: 1

Undirbúningur: 5 mínútur

Innihald:

  • 1 dl haframjöl
  • 2 dl kókosmjólk í fernu
  • 1/2 dl kókosmjöl
  • 1/2 dl hakkaðar möndlur
  • Akasíu hunang og ber

Aðferð:

Setjið haframjöl og kókosmjólkina í pott og sjóðið við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til grauturinn hefur þykknað. Blandið kókosmjölinu og hökkuðu möndlunum saman við og hrærið öllu vel saman. Njótið með berjum og smá akasíu hunangi!

Anna Eiríks

Anna Eiríksdóttir skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu á Vísi. Hún starfar sem deildarstjóri hjá Hreyfingu og er eigandi vefsins annaeiriks.is sem býður upp á fjarþjálfun og heilsusamlegar uppskriftir. 

Anna hefur þjálfað fólk í rúm 25 ár og er þáttastjórnandi æfingaþáttanna Hreyfum okkur saman sem notið hafa mikilla vinsælda hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Alla þættina má finna HÉR á Vísi.

Hér er hægt að fylgjast með Önnu Eiríks á Instagram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×