Tónlist

The Weeknd steypir Frikka Dór af stóli

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
The Weeknd trónir á toppi íslenska listans þessa vikuna. Hann kom fram á Coachella tónlistarhátíðinni í síðustu viku og verður þar aftur annað kvöld. 
The Weeknd trónir á toppi íslenska listans þessa vikuna. Hann kom fram á Coachella tónlistarhátíðinni í síðustu viku og verður þar aftur annað kvöld.  Kevin Mazur/Getty Images

Kanadíski söngvarinn The Weeknd skipar fyrsta sæti íslenska listans á FM957 þessa vikuna með lagið sitt Sacrifice. Friðrik Dór dettur niður um eitt sæti eftir margar vikur á toppnum með lagið Bleikur og Blár.

Íslenskt tónlistarfólk er með níu lög á lista þessa vikuna og ásamt því voru tvö íslensk lög kynnt inn sem líkleg til vinsælda. Fyrra lagið ber nafnið Drive og er flutt af tónlistarmönnunum Séra Bjössa og Háska. Síðara lagið heitir Hálfa Milljón og er flutt af röppurunum Herra Hnetusmjöri og Emmsjé Gauta, en þeir hafa áður sameinað krafta sína við lagið Þetta Má.

Eurovision atriði okkar Íslendinga, Með hækkandi sól, situr í fjórða sæti og hefur statt og stöðugt hækkað sig upp listann á undanförnum vikum. Lagið er flutt af hinum hæfileikaríku Siggu, Betu og Elínu Eyþórsdætrum og er bróðir þeirra, Eyþór Ingi, með þeim á trommum. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, jafnframt þekkt sem Lay Low, er höfundur lagsins og er hér á ferðinni virkilega öflugt teymi. Nú styttist óðfluga í Eurovision og tilhlökkunin er í miklu hámarki hjá undirritaðri.

Tónlistarmaðurinn Farruko er hástökkvari vikunnar á íslenska listanum en lagið hans Pepas hækkar sig um fjórtán sæti á milli vikna. Hér er á ferðinni alvöru sumar smellur og verður spennandi að fylgjast með því hvort lagið fari hærra upp listann.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00-16:00 á FM957.

Íslenski listinn í heild sinni:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

„Fólk var að rífast um það hver Húgó væri á meðan að ég sat bara beint fyrir framan þau“

Tónlistarmaðurinn Hugo skipar þriðja sæti íslenska listans á FM þessa vikuna með lagið Farinn. Hugo var valinn Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og hefur vakið mikla athygli fyrir grímuna sem hann klæðist hvert skipti sem hann kemur fram. Enginn virðist vita hver raunverulegi maðurinn sé á bak við Hugo. Blaðamaður hafði samband við Hugo og tók púlsinn á honum.

Með hækkandi sól klífur listann

Nú styttist óðfluga í Eurovision og íslenski listinn fylgist spenntur með á hliðarlínunni. Framlag okkar Íslendinga, lagið Með hækkandi sól, hækkar sig um tólf sæti á milli vikna og situr nú í sjötta sæti íslenska listans. 

Íslenskt tónlistarfólk tekur yfir topp tíu

Íslenskt tónlistarfólk átti öfluga viku á íslenska listanum.  Sex íslensk lög sitja nú í topp tíu og efstu fjögur lög listans eru eftir íslenska tónlistarmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×