Chelsea í úrslitaleikinn þriðja árið í röð

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Mason Mount kláraði dæmið.
Mason Mount kláraði dæmið. vísir/Getty

Chelsea er komið í úrslitaleik enska bikarsins annað árið í röð eftir öruggan sigur á Crystal Palace á Wembley í dag.

Stórt skarð var hoggið í lið Crystal Palace þar sem enski miðjumaðurinn Conor Gallagher mátti ekki spila með liðinu þar sem hann er á láni hjá Palace frá Chelsea.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum.

Þegar líða tók á leikinn tók Chelsea yfirhöndina og á 65.mínútu náði Ruben Loftus-Cheek forystunni fyrir Chelsea en hann hafði komið inná sem varamaður fyrir Mateo Kovacic snemma leiks.

Mason Mount tvöfaldaði forystu Chelsea á 76.mínútu eftir stoðsendingu Timo Werner og úrslitin ráðin. Lokatölur 2-0.

Chelsea mun mæta Liverpool í úrslitaleik keppninnar og fer leikurinn fram á Wembley í maí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira