Tónlist

„Þurftu að bíða í björgunarbátunum í fimm sólarhringa“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Atli Arnarsson vinnur að sinni fyrstu plötu.
Atli Arnarsson vinnur að sinni fyrstu plötu. Birna Schram

Tónlistarmaðurinn Atli Arnarsson gefur út sitt fyrsta tónlistarmyndband í dag við nýtt lag af komandi plötu hans Stígandi. Lagið nefnist Siglandi.

Atli vinnur nú hörðum höndum að sinni fyrstu sólóplötu sem kemur út síðar á árinu. Tónlistin á plötunni Stígandi er „instrumental“ og byggð á kassagítargrunnum og strengjakvartett.

Biðu fimm daga í björgunarbátum

Þema plötunnar er sjóslys sem varð árið 1967 þegar síldarbáturinn Stígandi sökk, langt norður í hafi. Í áhöfninni voru tólf menn sem allir náðu að komast í björgunarbáta. 

Afi Atla er einn þeirra. Mennirnir þurftu að bíða í björgunarbátunum í fimm sólarhringa, nánast án matar og drykkjar, áður en þeir loks fundust og björguðust allir. Hvert lag á plötunni táknar ákveðinn tímapunkt í ferlinu frá því að Stígandi sigldi af stað frá Ólafsfirði og þangað til áhöfnin bjargaðist.

Samhliða tónlistinni hefur Atli unnið sem hljóðmaður og leggur nú stund á nám í hljóðhönnun við Den Danske Filmskole í Kaupmannahöfn.

Klippa: Atli Arnarson - Siglandi

Pláss fyrir litlu augnablikin

Tónlistarmyndbandið við lagið var tekið upp í Kaupmannahöfn síðast liðinn desember og er leikstýrt af Birnu Ketilsdóttur Schram. Hún starfar sem leikstjóri í Kaupmannahöfn en myndin hennar Brávallagata 12 vann til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Stockfish í flokki heimildarverka nú á dögunum.

Atli ArnarssonBirna Schram

Birna segir mjúka og dreymandi tónlist Atla hafa hreyft við sér um leið og hún heyrði hana.

„Ég sá strax fyrir mér senur við lagið. Mig langaði að gera myndband sem leikur á andstæður mýktarinnar með myndbandi sem fylgir degi í lífi byggingaverkamanna. Sýna næmni og vináttu í hráu og hörðu umhverfi. Gefa pláss fyrir litlu augnablikin, pásurnar og andardrættina í amstri hversdagsins“.

Myndbandið og lagið kom út í dag og er nú aðgengilegt á öllum helstu tónlistarveitum og í spilaranum ofar í fréttinni. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×