Tónlist

Bein út­sending: Hlust­enda­verð­launin af­hent í Kola­portinu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hlustendaverðlaunin 2022 fara fram í dag.
Hlustendaverðlaunin 2022 fara fram í dag.

Hlustendaverðlaunin 2022 eru afhent í kvöld en þetta er í níunda skipti sem hátíðin fer fram. Viðburðurinn fer fram í Kolaportinu en sýnt verður frá verðlaununum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hægt verður að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi.

Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.

Kosning fór fram á Vísi fyrr á þessu ári en í kvöld kemur í ljós hverjir hljóta Hlustendaverðlaunin í ár.  Úrvalslið íslenskra tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni sem fer fram í Kolaportinu en rýmið mun skarta glænýju útliti þar sem öllu er tjaldað til.

Atriðin sem koma fram í ár eru átta talsins en þau eru Írafár,  Aron Can, Sigga Beinteins, Kælan mikla, Bríet, GDRN, Jón Jónsson og Hugo.

Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan. Viðburðurinn hefst klukkan 19 og stendur til um 20.30. 


Þessir listamenn koma til greina:

Lag ársins

  • Ég var að spá - RAKEL, JóiPé, CeaseTone
  • FLÝG UPP - Aron Can
  • Spurningar - Birnir, Páll Óskar
  • Segðu mér - Friðrik Dór
  • Ef ástin er hrein - Jón Jónsson, GDRN
  • Ástrós - Bubbi Morthens, BRÍET
  • Veldu stjörnu - Ellen Kristjánsdóttir, John Grant

Poppflytjandi ársins

  • BRÍET
  • Jón Jónsson
  • Herra Hnetusmjör
  • Daði Freyr
  • Friðrik Dór
  • Bubbi Morthens
  • GDRN

Rokkflytjandi ársins

  • Kaleo
  • superserious
  • Skrattar
  • Sign
  • GRÓA
  • BSÍ
  • Hylur
  • DIMMA

Söngkona ársins

  • Bríet
  • GDRN
  • Sigrún Stella
  • Rakel Sigurðardóttir
  • Margrét Rán
  • Kristín Sesselja
  • Klara Elias
  • Ellen Kristjánsdóttir

Söngvari ársins

  • Jökull Júlíusson
  • Kristófer Jensson
  • Aron Can
  • Herra Hnetusmjör
  • Friðrik Dór
  • Jón Jónsson
  • Bubbi Morthens
  • Sverrir Bergmann

Plata ársins

  • Undir Köldum Norðurljósum - Kælan Mikla
  • ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL - Aron Can
  • Kick The Ladder - Kaktus Einarsson
  • Lengi lifum við - Jón Jónsson
  • Sjálfsmynd - Bubbi
  • Bau Air - Ingi Bauer
  • KBE kynnir: Flottur Skrákur 2 - Herra Hnetusmjör
  • Surface Sounds - KALEO

Nýliði ársins

  • Hylur
  • BSÍ
  • Rakel Sigurðardóttir
  • HUGO
  • Karen Ósk
  • Poppvélin
  • Þorsteinn Einarsson
  • FLOTT

Myndband ársins

Kælan Mikla - Hvítir Sandar. Leikstjóri: Máni Sigfússon.

Klippa: Kælan Mikla - Hvítir Sandar feat. Alcest

superserious - Let's Be Grown Ups. Leikstjórar: Daníel Jón og Haukur Jóhannesson

Klippa: Superserious - Let's Be Grown Ups

Birnir og Páll Óskar - Spurningar. Leikstjóri: Magnús Leifsson.

Klippa: Birnir - Spurningar (feat. Páll Óskar)

Aron Can - FLÝG UPP X VARLEGA. Leikstjóri: Erlendur Sveinsson.

Klippa: Aron Can - Flýg upp // Varlega

Þorsteinn Einarsson - Shackles. Leikstjóri: Niklas Schwärzler.

Klippa: Þorsteinn Einarsson - Shackles

Daði & Gagnamagnið - 10 Years. Leikstjóri: Guðný Rós Þórhallsdóttir.

Klippa: Daði & Gagnamagnið - 10 Years

Hipsumhaps - Meikaða. Leikstjóri: Lil Binni.

Klippa: Hipsumhaps - Meikaða

Inspector Spacetime - Dansa og bánsa. Leikstjórar: Nikulás Tumi og Arína Vala Þórðardóttir.

Klippa: Inspector Spacetime - Dansa og bánsa

Daughters of Reykjavík - HOT MILF SUMMER. Leikstjórn: Arína Vala Þórðadóttir.

Klippa: Daughters of Reykjavík - HOT MILF SUMMER feat. STEPMOM

Kaleo - Break My Baby. Leikstjórn: Hörður Freyr Brynjarsson.

Klippa: Kaleo - Break My Baby

Tengdar fréttir

Þessir listamenn koma fram á Hlustendaverðlaununum 2022

Næstkomandi laugardagskvöld, 19. mars, fara Hlustendaverðlaunin fram með pomp og prakt. Úrvalslið íslenskra tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni sem fer fram í Kolaportinu en rýmið mun skarta glænýju útliti þar sem öllu er tjaldað til. Hægt verður að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu bæði á Stöð 2 og hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×