Menning

RAX Augnablik: „Ég var mjög ánægður að ná þessu“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Haförninn stelur senunni í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.
Haförninn stelur senunni í nýjasta þættinum af RAX Augnablik. RAX

Ragnari Axelssyni var eitt sinn boðið til Lofoten í Noregi til þess að kafa með og mynda háhyrninga. 

„Ég var náttúrulega mjög spenntur að ná myndum sem tikka í Norðurslóðaverkefni mitt allt saman og segi já. Um leið og ég skelli á þá áttaði ég mig á því að ég hef bara kafað í baðkarinu heima og í Laugardalslauginni,“ útskýrir ljósmyndarinn í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.

Þrátt fyrir að hann hefði enga köfunarreynslu ákvað hann að slá til. 

„Það var ekkert aftur snúið.“

Þetta varð að ævintýri sem hann gleymir aldrei. Í Lofoten má einnig finna haferni sem Ragnar segir að hafi tignarlega og hættulega áru. Hann ákvað engu að síður að reyna að ná mynd af einum haferninum. 

„Mér var orðið svo kalt að ég gat ekki fókuserað.“

Frásögnina má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.  RAX Augnablik eru örþættir og birtast á Lífinu á Vísi og Stöð 2+ alla sunnudaga. 

Klippa: RAX Augnablik - Haförninn í Lofoten

Áttu ekki roð í konurnar

RAX var feginn þegar að aðstæður reyndust of erfiðar til þess að kafa með háhyrningunum og ákvað í staðinn að skrásetja lífið í Lofoten, þar sem fólk stundar sjósund og brimbrettaiðkun af kappi. 

„Maður átti ekki roð í þessar konur sem fóru í sjóinn. Þær voru bara eins og í saumaklúbb, að tala saman í ísköldum sjó. Þeir karlar sem voru með þeim þeir tolldu ekkert jafn lengi og þær.“

Þegar kom að því að mynda brimbrettakappana mætti ljósmyndaranum önnur áskorun, enda hafði hann aldrei stigið á brimbretti á ævinni. 

„Ég held að ég hafi drukkið hálft Atlantshafið.“

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.

Þegar dýrin stela senunni

Ragnar Axelsson hefur myndað dýr um allan heim á sínum ferli sem ljósmyndari. Hann hefur áður sagt frá áhugaverðum dýramyndum í fyrri þáttaröðum af RAX Augnablik hér á Vísi.

Vægðarlaus veröld Sleðahunda

Veiðimenn Grænlands eiga sleðahundunum að mörgu leyti líf sitt að launa. En veruleiki sleðahundanna er enginn barnaleikur eins og Ragnar Axelsson ljósmyndari kynntist af eigin raun. Í þættinum Vægðarlaus veröld sleðahundanna segir hann sögur frá Grænlandi.

Hesturinn hlæjandi

Ragnar fór eitt sinn ásamt hópi fólks á fjall að smala og náði þar ótrúlegum myndum. Eftir að hafa náð skondinni mynd af kind vildi hann ná mynd af hlæjandi hesti. Í einni áningunni gaf hann hesti smá kók og úr varð myndin af hlæjandi hestinum. 

Á fýlaveiðum

Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi. Lífið í Færeyjum er í öðrum takti en við eigum að venjast sem Ragnar segir að sé stór hluti af sjarma eyjanna.


Tengdar fréttir

„Þetta var partur af hans lífsgleði“

„Loftmyndin er svolítið vanmetin í því sem hún gerir fyrir Ísland,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari og flugmaður. Nýjasti þátturinn af RAX Augnablik var tileinkaður flugmanninum Haraldi Diego, sem lést í flugslysi á Þingvallavatni á flugvél sinni þann 3. febrúar síðast liðinn.

Ljósmyndirnar sem selja Ísland: „Þeir elskuðu að fljúga með honum“

Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik sýnir Ragnar Axelsson magnaðar ljósmyndir frá frá ferðum sínum með bandaríska ljósmyndaranum Robert L. Breeden, sem er hugfanginn af Íslandi. Þeir skoðuðu meðal annars staði á hálendi Íslands sem fáir heimsækja og minna helst á aðra plánetu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×