Erlent

Pútín sagður ein­angraður og með of­­sóknar­æði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Samúel Karl Ólason skrifa
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður bæði einangraður og með ofsóknaræði.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður bæði einangraður og með ofsóknaræði. AP/Alexei Nikolsky

Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. 

Sú mynd sem hefur verið teiknuð upp af honum er að hann virðist einangraður og treysti á smáan hóp ráðgjafa sem hafi ekki sagt honum sannleikann um það hversu erfitt Rússum er að reynast að sigra Úkraínu.

Pútín er talinn með mikið ofsóknaræði og er sagður vanmeta samkennd andstæðinga sinna og er óttast að hann muni bregðast harkalega við, verði hann málaður út í horn.

Sá ótti hefur leitt til þess að undanfarna daga hafa ráðamenn í vesturveldunum svokölluðu ítrekað sagt opinberlega að Atlantshafsbandalagið muni ekki grípa inn í átökin í Úkraínu með beinum hætti.

Ráðgjafar hafi gefið Pútín rangar upplýsingar

Samkvæmt frétt Washington Post jukust áhyggjur ráðamanna í Bandaríkjunum og Evrópu verulega þegar Pútín setti kjarnorkuvopnasveitir sínar í viðbragðsstöðu. Þá fóru þeir að kalla eftir frekari upplýsingum um hugarástand forsetans rússneska.

Fyrir innrásina í Úkraínu sögðu leyniþjónustur í Bandaríkjunum og Bretlandi að ráðgjafar Pútíns væru að gefa honum rangar upplýsingar um hversu auðvelt það yrði fyrir Rússland að sigra Úkraínu.

Einn heimildarmaður Washington Post frá Evrópu sagði Pútín ekki í góðu ástandi. Hann öskraði mikið á starfsfólk sitt og innrásin væri langt á eftir áætlun.

„Þetta er hættulegur tími fyrir Pútín,“ sagði heimildarmaðurinn. Hann sagði að ef Pútín heyrði af því að NATO væri að íhuga að loka lofthelginni yfir Úkraínu, eins og Úkraínumenn hafa beðið um, myndi Pútín rakleiðis hugsa um Moammar Gaddafi, einræðisherra Líbíu sem var drepinn af uppreisnarmönnum árið 2011.

Það var eftir að NATO lokaði lofthelgi Líbíu og gerði loftárásir gegn her einræðisherrans og er það talið hafa leitt til falls hans.

Segir innrásina munu verða grimmilegri

Þá muni það reynast Rússum mjög erfitt að hernema Úkraínu. Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, telur það bæði vegna stærðar landsins og fjölda landsmanna, sem muni veita harða mótspyrnu.  Það er þá sem mannfallið mun fara að taka sinn toll, segir Wallace.

Rússar segjast ekki hafa í hyggju að hernema Úkraínu, heldur koma fasískum öflum frá. Hins vegar er óljóst hvernig þeir sjá framhaldið fyrir sér, þar sem Úkraínumenn eru alfarið á móti afskiptum Rússa og líklegir til að velja sér nýja ráðamenn þegar innrásarherinn er á brott.

Þá telur Wallace að áhlaup Rússa verði grimmilegra eftir því sem á líður. Hann sagði í samtali við útvarpsstöðina LBC að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki fengið sínu framgengt og hefði brugðist við með því að umkringja borgir og ráðast gegn þeim á næturnar. Hann myndi að lokum freista þess að brjóta alla andspyrnu á bak aftur og ráðast inn í borgirnar.


Tengdar fréttir

Vildi sannfæra þjóðina um árangur sinn

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu stefnuræðu fyrir báðar deildar Bandaríkjaþings í nótt. Þar hét Biden því að halda aftur af innrás Rússa í Úkraínu, koma böndum á verðbólgu í Bandaríkjunum og kveða niður kórónuveiruna.

Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni

Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×