Reyndi að stela sæði Drake en sakar hann um að hafa sett „hot sauce“ í smokkinn Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 18. janúar 2022 13:30 Tónlistarmaðurinn Drake er sagður hafa gripið til örþrifaráðs til þess að koma í veg fyrir það að hjásvæfa hans gæti notað sæðið hans. GETTY/PARAS GRIFFIN Instagram-fyrirsæta nokkur hefur stigið fram með heldur athyglisverðar ásakanir á hendur tónlistarmanninum Drake. Hollywood-spekingurinn Birta Líf segir frá því ásamt fleiru í Brennslutei vikunnar á FM957. „
Hann hitti stelpu á djamminu, allt gott og blessað og þau sofa síðan saman. Hún fer síðan inn á baðherbergi og hann heyrir svo bara í henni öskra. Hann hleypur inn og spyr hvað sé í gangi. Þá hafði hún tekið smokkinn sem þau voru búin að nota og reynt að setja sæðið inn í sig til að verða ólétt eftir Drake,“ segir Birta Líf frá. Ástæða þess að hún öskraði var þó sú að Drake er sagður hafa sett „hot sauce“ eða sterka sósu ofan í smokkinn eftir kynlífið. Slúðurmiðlar vestanhafs segja hann hafa gert þetta til þess að drepa sæðisfrumurnar og koma í veg fyrir að hjásvæfur hans geti notað sæði hans, eins og fyrirsætan reyndi að gera. „Hún náttúrlega brann og þetta var ekkert eðlilegt vont, ég get ekki ímyndað mér,“ en fyrirsætan ónefnda er sögð hafa tekið smokkinn upp úr ruslinu og því er þetta meinta örþrifaráð Drake kannski ekki komið til að ástæðulausu. Drake er talinn vísa til málsins undir nýlegri Instagram-mynd þar sem hann skrifar: „Þú getur fengið þínar 15 mínútur af frægð... En ég tek hinar 23 klukkustundirnar og 45 mínúturnar.“ View this post on Instagram A post shared by champagnepapi (@champagnepapi) Sjaldan lognmolla í kringum Kardashian fjölskylduna „Síðasta vika var bara rosaleg. Kardashian heimurinn er náttúrlega bara að springa. Það er allt að gerast þar,“ segir Birta Líf. Eins og Vísir hefur fjallað um er tónlistarmaðurinn Kanye West kominn með nýja kærustu, leikkonuna Juliu Fox. „Það eru margir sem halda að þetta sé sett upp, en svo eru líka margir sem halda að Kanye sé að sýna okkur, alheiminum, að það skipti ekki máli með hverjum hann er, hann geti gert alla fræga.“ Sjá einnig: Nýja kærasta Kanye West staðfestir sambandið í pistli og myndatöku Í þættinum ræðir Birta einnig drama í afmæli sem Kardashian fjölskyldan hélt um helgina, steypiboð Kylie Jenner, getgátur um nafn ófædds barns hennar og hverjir munu koma fram á tónlistarhátíðinni Coachella. Sjá einnig: Kanye ósáttur út af barnaafmæli og rappar um að berja Pete Davidson Hér að neðan má hlusta á Brennslute vikunnar í heild sinni.
FM957 Brennslan Hollywood Tengdar fréttir Nýja kærasta Kanye West staðfestir sambandið í pistli og myndatöku Rapparinn Kanye West og leikkonan Julia Fox hafa sést saman á hinum ýmsu stefnumótum síðan þau kynntust á gamlársdag fyrir rúmri viku síðan og hefur Julia nú staðfest sambandið. Hún lýsir sambandinu ítarlega og segir það eins og að upplifa ævintýri. 8. janúar 2022 14:00 Segir samband Kim Kardashian og Pete Davidson loksins opinbert „Þetta er orðið opinbert. Ég er búin að vera lengi að sætta mig við þetta, en þetta er bara svona. Þau eru saman,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir um sambandið sem allra augu hafa verið á síðustu mánuði, þeirra Kim Kardashian og Pete Davidson. 21. desember 2021 14:01 Thompson sagður hafa eignast barn í lausaleik Hin 31 árs gamla Maralee Nichols eignaðist barn á dögunum og segir hún körfuboltaleikmanninn Tristan Thompson vera faðir barnsins. Thompson hefur viðurkennt að hann hafi sofið hjá Nichols en hann var aftur á móti í sambandi með Khloé Kardashian þegar barnið kom undir. 7. desember 2021 11:51 Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira
Nýja kærasta Kanye West staðfestir sambandið í pistli og myndatöku Rapparinn Kanye West og leikkonan Julia Fox hafa sést saman á hinum ýmsu stefnumótum síðan þau kynntust á gamlársdag fyrir rúmri viku síðan og hefur Julia nú staðfest sambandið. Hún lýsir sambandinu ítarlega og segir það eins og að upplifa ævintýri. 8. janúar 2022 14:00
Segir samband Kim Kardashian og Pete Davidson loksins opinbert „Þetta er orðið opinbert. Ég er búin að vera lengi að sætta mig við þetta, en þetta er bara svona. Þau eru saman,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir um sambandið sem allra augu hafa verið á síðustu mánuði, þeirra Kim Kardashian og Pete Davidson. 21. desember 2021 14:01
Thompson sagður hafa eignast barn í lausaleik Hin 31 árs gamla Maralee Nichols eignaðist barn á dögunum og segir hún körfuboltaleikmanninn Tristan Thompson vera faðir barnsins. Thompson hefur viðurkennt að hann hafi sofið hjá Nichols en hann var aftur á móti í sambandi með Khloé Kardashian þegar barnið kom undir. 7. desember 2021 11:51