Innlent

Kostnaður við sýnatökur 2,5 milljarðar króna en verulegar tekjur fengist á móti

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Í tölunum er ekki kostnaður við greiningu PCR-sýnanna en hann fellur til hjá Landspítalanum.
Í tölunum er ekki kostnaður við greiningu PCR-sýnanna en hann fellur til hjá Landspítalanum. Vísir/Vilhelm

Kostnaður Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu við sýnatökur vegna Covid-19 frá upphafi kórónuveirufaraldursins nemur um 2,5 milljörðum króna. Á sama tíma hafa tekjurnar numið um 2 milljörðum og eftir standa 460 milljónir sem hafa fallið á ríkissjóð.

Upplýsingarnar að ofan fékk Vísir hjá Jónasi Guðmundssyni, framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslunni, en Fréttablaðið sagði frá því í gær að kostnaðurinn við sýnatökurnar hefði numið 460 milljónum króna fyrstu tíu mánuði ársins.

Hið rétta er að kostnaður við sýnatökurnar nam í fyrra um milljarði króna og er þá með talinn kostnaður við uppsetningu sýnatökustöðva, innkaup prófa og fleiri tilfallandi kostnaðarliðir en Heilsugæslan hefur sinnt sýnatökum á Suðurlandsbraut, í Keflavík og verið með nokkra starfsemi úti á landi.

Í sumar fór Heilsugæslan að bjóða upp á hraðpróf og aðsókn í þau hefur aukist verulega með haustinu.

Í fyrra var eingöngu um að ræða svokölluð PCR-próf; einkennasýnatökur og sýnatökur ferðamanna við komuna og brottför frá landinu. Heilsugæslunni var á þessum tíma heimilt að rukka gjald og stóð gjaldtakan að mestu undir kostnaðinum árið 2020, að sögn Jónasar.

„Á þessu ári hefur þetta verið fjölbreyttari flóra,“ segir Jónas um Covid-prófin en í sumar hóf Heilsugæslan að bjóða upp á svokölluð hraðpróf. Ríkisstjórnin ákvað að þau skyldu vera gjaldfrjáls og í haust var meira og minna öll gjaldtaka felld niður.

Jónas segir tekjurnar hafa dugað vel upp í kostnað framan af, ekki síst vegna þeirra ferðamanna sem hingað komu í sumar, en með haustinu hafi róðurinn þyngst. Þá hafi kostnaðurinn farið fram úr tekjunum, sem námu 1,5 milljarði króna, og útaf standi umræddar 460 milljónir, fyrstu tíu mánuði ársins.

Samkvæmt Fréttablaðinu hafa Sjúkratryggingar Íslands greitt 238 milljónir króna vegna 70.772 hraðprófa á tímabilinu 20. september til 7. júní. Þá voru 575 þúsund sýni tekin á Suðurlandsbraut fyrstu ellefu mánuði ársins, þar af 220 þúsund hraðpróf, og 250 þúsund sýni í Keflavík en þar er um að ræða PCR-próf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×