Tónlist

Jelena, Maggi Kjartans og Tryggvi á Degi íslenskrar tónlistar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 1. desember næstkomandi.
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 1. desember næstkomandi. Samsett

Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á miðvikudag. Á fjölum Iðnó við tjörnina verður efnt til dagskrár í tilefni dagsins, þar sem veittar verða viðurkenningar þeim verkefnum sem þótt hafa staðið upp úr síðustu misseri - auk heiðursverðlauna dagsins, sem kennd eru við Lítinn fugl.

Það er Sam­tónn sem stend­ur að Degi ís­lenskr­ar tón­list­ar en að baki Sam­tóni standa FÍH, FHF, STEF, SFS, FTT og Tón­skálda­fé­lag Íslands. Framkvæmdin er í höndum Íslensku tónlistarverðlaunanna en framkvæmdastjóri þeirra er Kristján Freyr Halldórsson.

„Tónlistin verður vitaskuld í aðalhlutverki og í ár verða þrjú íslensk lög í forgrunni. Lögin voru valin í góðu samstarfi við tónmenntakennara um allt land og hafa því verið fyrirferðarmikil í kennslu í skólum víðs vegar. Þau munu því hljóma víða á miðvikudaginn kemur,“ segir í tilkynningu um dag íslenskrar tónlistar.

Lögin þrjú eru Allra veðra von með Tryggva, Stúlkan með Todmobile og Þakklæti með Trúbrot.

Allra veðra von með Tryggva

„Tryggvi Heiðar Gígjuson hefur vakið athygli fyrir þjóðlagaskotna tónlist sína og ómþýðu rödd síðustu misseri. Lagið Allra veðra von kom út árið 2019 og hefur verið vinsælt á útvarpsstöðvum síðan þá og er enn. Það eru eflaust margir sem bíða eftir meira efni frá Tryggva sem hefur ekki verið iðinn við að koma fram til þess en áhorfendum gefst loks færi á að kynnast þessum forvitnilega tónlistarmanni betur.“

Sverrir Páll Snorrason

Stúlkan með Todmobile

Lagið Stúlkan kom út á plötu Todmobile árið 1993, texti Andreu Gylfadóttur við lag Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar. Að þessu tilefni mun hin stórefnilega söngkona Jelena Ćirić flytja lagið á sinn máta en Jelena gaf út plötuna Shelters One árið 2020 og hlaut hún tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir plötuna. Jelena er fædd í Serbíu en hefur búið á Íslandi um árabil. Jelenu til aðstoðar verður Alexandra Kjeld sem leikur á kontrabassa.´

Juliette Rowland

Þakklæti með Trúbrot

„Loks mun Magnús Kjartansson flytja lag sitt, Þakklæti eða To be Grateful, sem kom út fyrir 50 árum síðan á hljómplötunni Lifun með Trúbroti. Magnús á bæði lag og texta og fær að þessu sinni gesti með sér til að flytja lagið við þetta sérstaka tilefni. Honum til halds og trausts verða Rósa Jóhannesdóttir sem leikur á fiðlu og Zimsen-tríóið mun syngja en það er skipað systkinunum Grétu Petrínu Zimsen, Jóhannesi Jökli Zimsen og Iðunni Helgu Zimsen. Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson fagnar ekki eingöngu stórafmæli þessa lags í ár heldur fagnaði hann 70 ára afmæli sínu fyrr á árinu.“

Mynd úr einkasafni

„Dagskráin sjálf hefst um 13.00 og verður í beinni útsendingu hjá Sjónvarpi Símans og á Mbl. Öll þjóðin er hvött til að syngja með fyrrgreindum lögum í tilefni dagsins og að sjálfsögðu að hafa íslenska tónlist í forgrunni þennan dag. Eins eru útvarpsstöðvar hvattar til þess að hafa íslenska tónlist í öndvegi þennan gleðilega dag.“

Ósk Gunnarsdóttir tók við verðlaununum á síðasta ári fyrir útvarpsstöðina Íslenska Bylgjan.Aðsent

Í fyrra hlaut við sama tilefni fjölmiðlamaðurinn Jónatan Garðarsson Litla fuglinn fyrir framúrskarandi störf í þágu íslenskrar tónlistar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlaut hvatningarverðlaun, Sjónvarp Símans hlaut Gluggann fyrir sérstaka atfylgi við íslenska tónlist auk þess sem útvarpsstöðin Íslenska bylgjan hlaut nýsköpunarverðlaun.


Tengdar fréttir

„Að breyta sjálfum sér er oftast hvorki auðvelt né rómantískt“

„Mér líður mjög vel á Íslandi. Það er orðið mitt heimili, það er engin spurning, og ég þrái ekki að flytja annars staðar,“ segir tónlistar- og blaðakonan Jelena Ćirić sem gaf á dögunum út sína fyrstu plötu. Hún viðurkennir þó að hún fái ekki heimþrá hafi það sannarlega verið erfitt að geta ekki heimsótt fjölskyldu sína í Kanada í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×