Bíó og sjónvarp

Troð­fullt í Bíó Para­dís á hinstu mynd Árna Ólafs

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Olga Boladz leikur aðalhlutverið í kvikmyndinni Wolka. Hún mætti á frumsýninguna í Bíó Paradís. 
Olga Boladz leikur aðalhlutverið í kvikmyndinni Wolka. Hún mætti á frumsýninguna í Bíó Paradís.  Vísir/Elín Guðmunds

Kvikmyndagerðarmaðurinn Árni Ólafur Ásgeirsson lést fyrr á þessu ári en hann markaði djúp spor í íslenskt kvikmyndalíf sem listamaður og manneskja. Hans fjórða og hinsta mynd, Wolka, var frumsýnd á RIFF í ár og var hún sýnd í nokkrum sölum í einu vegna fjölda gesta. 

Wolka segir frá 32 ára pólskri konu sem fórnar öllu með því að brjóta skilorð sitt, eftir fimmtán ára afplánun í fangelsi vegna morðs, og ferðast til Íslands til að leita að konu fyrir dularfullar sakir. Myndin er ein þriggja íslenskra kvikmynda hátíðarinnar, hinar eru heimildarmyndirnar Ekki einleikið og Hvunndagshetjur, sem einblína á sjónarhorn innflytjenda eða fólks með erlendan uppruna á Íslandi, og fer nánast alfarið fram á pólsku.

Árni Ólafur nam leikstjórn í kvikmyndaskólanum í Łódź í Póllandi á sínum tíma, en það er ein virtasti háskóli sinnar gerðar í heiminum. Myndin er pólsk-íslensk samframleiðsla, en Árni skrifaði handritið ásamt Michal Godzic, en í stöðum listrænna stjórnenda má finna góða blöndu Íslendinga og Pólverja.

Elín Guðmundsdóttir ljósmyndari Vísis kíkti á RIFF frumsýninguna á Wolka í Bíó Paradís.

Halldóra Geirharðsdóttir.Vísir/Elín Guðmunds
Lára Sigurðardóttir og Roberto PaganiVísir/Elín Guðmunds
Ólafur Þór Erlendsson og Hildur KristjánsdóttirVísir/Elín Guðmunds
Kristín Björnsdóttir og Ingunn IngólfsdóttirVísir/Elín Guðmunds
Olga Bolac leikkona myndarinnar Wolka.Vísir/Elín Guðmunds
Soffía Guðlaugardóttir
Elín Arnar fjölmiðlafulltrúi RIFFVísir/Elín Guðmunds
Silja AðalsteinsdóttirVísir/Elín Guðmunds

Fleiri myndir má finna í albúminu hér fyrir neðan.

Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Ljósmyndararnir Lina Maria Balciunaite og Brynjar Leó HreiðarssonVísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Dora
Hrönn stjórnandi RIFFVísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds
Vísir/Elín Guðmunds

Tengdar fréttir

Kominn tími til að segja sögu Margrétar fyrstu

Leikstjóri einnar stærstu kvikmyndar sem hefur verið gerð á Norðurlöndum segir að það hafi verið stórkostlegt að vinna með íslenskum leikurum að gerð hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×