Nýtt myndband frá Silju Rós: „Plönturnar höfðu visnað eins og ástin þeirra“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. september 2021 12:00 Í dag frumsýnum við tónlistarmyndbandið við lagið Mind Stuck on U frá söngkonunni Silju Rós. Lagið er eftir Silju Rós sjálfa og kom út í byrjun árs.
Lagið Mind Stuck on U var önnur smáskífan af annarri plötu hennar sem er væntanleg 1. október næstkomandi.Á plötunni verða átta lög sem eru öll samin af Silju Rós. Leikarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Taylor McWhorter framleiddi myndbandið og með hlutverk fóru leikkonan og dansarinn Francesca Phillips og leikarinn Ricardo. Tökur fóru fram í Los Angeles síðustu mánuði. „Taylor og Francesca eru svo magnaðir listamenn og mér finnst ég svo heppin að hafa fengið að vinna með þeim báðum þrátt fyrir að ég hafi ekki sjálf getað verið í LA meðan tökur stóðu yfir. Ef markmiðið þeirra var að gefa mér heimþrá með myndbandinu þá tókst þeim það svo sannarlega. Ég hef sjálf ekkert náð að heimsækja LA síðan ég flutti til Kaupmannahafnar 2019. Og nú er ég alveg flutt til Íslands þó svo að California verði alltaf mitt annað heimili í hjartanu mínu,“ segir Silja Rós um myndbandið. Stilla úr myndbandinu við Mind Stuck on U. „Það áhugaverða við gerð tónlistarmyndbandsins var að við fengum langan tíma til að framleiða myndbandið sem varð til þess að við gátum leikið okkur með andstæður árstíðanna til að ýta undir söguna á myndrænan hátt,“ segir Taylor. „Mig langaði að segja uppbyggilega sögu þar sem einstaklingur nýtir ástarsorg til þess að komast í betri tengingu við sjálfan sig og átta sig á því að maður getur verið sjálfum sér nóg með sjálfsást að vopni. Fyrstu tökur fóru fram í maí þegar plönturnar voru í sem mestum blóma og fimm mánuðum seinna fórum við á nákvæmlega sömu tökustaði og tókum upp senurnar með Francescu þar sem plönturnar höfðu visnað eins og ástin þeirra. Þar vildi ég ná fram þeirri tilfinningu að hún gæti sleppt taki á fortíðinni og stigið inn í sinn eigin styrk. Myndbandið fékk algjörlega þann tíma sem það þurfti og tímasetningarnar virkuðu fullkomlega,“ segir Taylor að lokum. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Tónlist Bandaríkin Tengdar fréttir „Óþarfa samkeppni sem getur skapað spennu á milli fólks“ Tónlistar- og leikkonan Silja Rós gefur í dag út lagið Success. Lagið er töluvert dekkra en seinustu lög söngkonunnar og einkennist af flæðandi takti og tilfinningaríkri rödd Silju sem drífur lagið áfram. 18. júní 2021 13:35 Var föst í óheilbrigðu og ofbeldisfullu sambandi „Lagið er tileinkað öllum þeim sem hafa einhvern tímann upplifað ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt,“ segir söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir um lagið sitt Reality sem kom út í gær. 27. mars 2021 20:00 Silja Rós frumsýnir nýtt myndband innblásið af lífinu í sóttkví „Ég er ótrúlega þakklát fyrir alla spilunina sem Stay Still hefur fengið og jákvæðu viðbrögðin svo ég er ótrúlega spennt að gefa út meira efni af plötunni,“ segir söngkonan Silja. 15. janúar 2021 09:00 Alltaf verið hrædd við að staðna Söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir fór út til Los Angeles á vit ævintýranna fyrir nokkrum árum og lærði leiklist. Hún starfar sem söngkona og lagahöfundur í Kaupmannahöfn og vinnur að nýrri plötu. 18. október 2020 09:01 Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Fleiri fréttir Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira
„Óþarfa samkeppni sem getur skapað spennu á milli fólks“ Tónlistar- og leikkonan Silja Rós gefur í dag út lagið Success. Lagið er töluvert dekkra en seinustu lög söngkonunnar og einkennist af flæðandi takti og tilfinningaríkri rödd Silju sem drífur lagið áfram. 18. júní 2021 13:35
Var föst í óheilbrigðu og ofbeldisfullu sambandi „Lagið er tileinkað öllum þeim sem hafa einhvern tímann upplifað ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt,“ segir söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir um lagið sitt Reality sem kom út í gær. 27. mars 2021 20:00
Silja Rós frumsýnir nýtt myndband innblásið af lífinu í sóttkví „Ég er ótrúlega þakklát fyrir alla spilunina sem Stay Still hefur fengið og jákvæðu viðbrögðin svo ég er ótrúlega spennt að gefa út meira efni af plötunni,“ segir söngkonan Silja. 15. janúar 2021 09:00
Alltaf verið hrædd við að staðna Söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir fór út til Los Angeles á vit ævintýranna fyrir nokkrum árum og lærði leiklist. Hún starfar sem söngkona og lagahöfundur í Kaupmannahöfn og vinnur að nýrri plötu. 18. október 2020 09:01