Fótbolti

Leik­menn seldir frá Dan­mörku fyrir meira en tíu milljarða: „Ef ég get farið með leik­­menn til Dan­­merkur þá geri ég það“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson gekk í raðir danska úrvalsdeildarliðsins FC Kaupmannahafnar á dögunum. Félagið er duglegt að selja leikmenn í stærri lið erlendis.
Ísak Bergmann Jóhannesson gekk í raðir danska úrvalsdeildarliðsins FC Kaupmannahafnar á dögunum. Félagið er duglegt að selja leikmenn í stærri lið erlendis. Vísir/Hulda Margrét

Lið í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta seldu leikmenn út fyrir landsteinana fyrir meira en 500 milljónir danskra króna í félagaskiptaglugganum sem lokaði nú um mánaðarmótin. Samsvarar það rúmlega tíu milljörðum íslenskra króna.

Danska deildin er í dag talin sú besta á Norðurlöndunum og helsti stökkpallur leikmanna sem vilja komast lengra út í heim. Kamaldeen Sulemana og Mohamed Daramy eru bestu dæmin um það en þeir voru seldir á fúlgur fjár í sumar. Þá fór Íslandsvinurinn Alexander Scholz til Japans og er á lista yfir dýrustu leikmennina sem seldir voru úr landi.

Danska deildin hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið þar sem FC Kaupmannahöfn fékk landsliðsmennina Andra Fannar Baldursson og Ísak Bergmann Jóhannesson í sínar raðir. Sá fyrri kom á láni en FCK borgaði Norrköping dágóða summu fyrir Ísak Bergmann. Þá skipti Mikael Neville Anderson um lið innan Danmerkur er hann fór frá Midtjylland til AGF í Árósum.

„Danmörk er númer eitt, langbest á Norðurlöndunum. Svíþjóð kemur þar á eftir og svo Noregur,“ sagði umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon í stuttu spjalli við Vísi. Umboðsstofa hans kom til að mynda að kaupum FCK á Ísaki Bergmanni.

„Ef ég get farið með leikmenn til Danmerkur eða Svíþjóðar þá geri ég það frekar en að fara með þá til Noregs til að mynda,“ bætti Magnús Agnar við.

Miðað við sölutölur sumarsins er það skynsamlegt enda danska deildin að selja leikmenn fyrir töluvert hærri upphæðir en þekkist á Norðurlöndunum. Stig Torbjörnsen, yfirnjósnari IFK Norrköping, staðfesti þetta í ítarlegu viðtali við Sportbladet nýverið.

Á vef TV2 í Danmörku var svo tekið saman að leikmenn hefðu verið seldur úr deildinni fyrir meira en 500 milljónir danskra króna eða rúmlega 10 milljarða íslenskra króna.

„Ég held við getum verið stolt af því að við seljum leikmenn erlendis fyrir slíkar upphæðir. Að fólk hafi opnað augun og séð hvernig við þróum leikmenn hér í Danmörku. Eitthvað sem við teljum vera einkenni dönsku deildarinnar, sagði Mads Junker, sérfræðingur TV2, um öll þessi félagaskipti.

Hér að neðan má sjá lista yfir þá leikmenn sem seldir voru úr landi og verð í dönskum krónum samkvæmt vefnum Transfermarkt.

 Í frétt TV2 er tekið fram að oft er kaupverð ekki gefið upp og því eru sumar tölurnar ef til vill ekki réttar upp á krónu. Oftast er kaupverð þó hærra en uppgefið er ef allar klásúlur eru teknar með í myndina. Er til að mynda talið að Kamaldeen Sulemana hafi kostað rúmlega 150 milljónir DKK en ekki 112 og hálfa.

Leikmenn sem seldir voru úr dönsku úrvalsdeildinni

Nafn - Lið - Verð í dönskum krónum

Kamaldeen Sulemana - Frá Nordsjælland til Stade Rennes (112.5 milljónir DKK)

Mohamed Daramy - Frá FCK til Ajax (90 milljónir DKK)

Frank Onyeka frá Midtjylland til Brentford (75 milljónir DKK)

Jesper Lindstrøm - Frá Brøndby til Eintracht Frankfurt (52.5 milljóni rDKK)

Anders Dreyer - Frá Midtjylland til Rubin Kazan (52.5 milljónir DKK)

Victor Nelsson - Frá FCK til Galatasaray (52.5 milljónir DKK)

Wahid Faghir - Frá Vejle til Stuttgart (DKK 33.75 milljónir DKK)

Oliver Christensen - Frá OB til Herthu Berlín (DKK 22.5 milljónir DKK)

Peter Vindahl - Frá Nordsjælland til AZ Alkmaar (DKK 13.5 milljónir)

Viktor Fischer - Frá FCK til Royal Antwerp (11.25 milljónir DKK)

Magnus Mattsson - Frá Silkeborg til NEC Njimegen (7.5 milljónir DKK)

Guillermo Varela - Frá FCK til Dynamo Moskvu (7 milljónir DKK)

Casper Højer - Frá AGF til Sparta Prag (5.25 milljónir DKK)

Rasmus Nicolaisen - Frá Midtjylland til Toulouse (4 milljónir DKK)

Alexander Scholz - Frá Midtjylland til Urawa Red Diamonds (3.75 milljónir DKK)

Karlo Bartolec from FCK til NK Osijek (1.9 milljón DKK)


Tengdar fréttir

Ísak kostaði FCK rúmar 700 milljónir og ÍA græðir á tá og fingri

Talið er að FC Kaupmannahöfn hafi greitt rúmlega 730 milljónir íslenskra króna fyrir hinn 18 ára gamla Ísak Bergmann Jóhannesson. Kemur þetta fram á vef Sportbladet í Svíþjóð en FCK keypti Ísak Bergmann frá IFK Norrköping. ÍA gæti fengið vel á annað hundrað milljóna króna í sinn hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×