Kane með tvennu í öruggum sigri

Andri Broddason skrifar
Harry Kane skorar og skorar.
Harry Kane skorar og skorar. vísir/getty

Englendingar fljúga hátt þessa dagana og unnu sannfærandi 3-0 sigur á Tékkum í kvöld.

Harry Kane var að jafna landsleikjamet Peter Shilton í kvöld en þetta var landsleikur númer 125 hjá honum.

Kane hélt upp á áfangann með tveimur mörkum og nálgast nú 100 mörk fyrir enska landsliðið. Þriðja markið var sjálfsmark hjá Tékkum.

Englendingar eru í öðru sæti þriðja riðils í A-deildinni. Spánverjar tróna á toppnum með fullt hús.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira