Tíu leikmenn Everton björguðu sér fyrir horn gegn B-deildarliði Huddersfield

Andros Townsend fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum
Andros Townsend fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum George Wood/Getty Images

Alex Iwobi kom Everton yfir á 26. mínútu eftir stoðsendingu frá Tom Davies, en Tom Lees jafnaði metin fyrir Huddersfield rétt fyrir hálfleik þegar hann skallaði hornspyrnu Sorba Thomas í netið, og staðan því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Moise Kean kom reyndar boltanum í netið í stöðunni 1-0, en var dæmdur rangstæður.

Huddersfield var hættulegri aðilinn stóran hluta seinni hálfleiksins, og það var ekki að sjá að annað liðið spilar í úrvalsdeildinni og hitt í B-deildinni.

Liðsmenn Huddersfield héldu að þeir væru búnir að taka forystuna á 57. mínútu þegar að Matty Pearson stýrði hornspyrnu í netið. Aðstoðardómarinn var þó vel á verði og tók eftir því að Fraizer Campbell stóð í sjónlínu Asmir Begivic, markvarðar Everton, og var rangstæður.

Þegar um tíu mínútur voru til leiksloka fékk Andre Gomes boltann úti á vinstri kanti og kom honum fyrir markið. Þar var mættur Andros Townsend sem kláraði færið vel.

Það reyndist seinasta mark leiksins og Everton fer því áfram í þriðju umferð eftir 2-1 sigur. Huddersfield situr hinsvegar eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira