Innlent

Ekki gaman að horfa á iðnaðar­svæði í niður­níðslu út um gluggann

Eiður Þór Árnason skrifar
Hugmyndir um uppbyggingu á Oddeyri hafa lengi verið umdeildar.
Hugmyndir um uppbyggingu á Oddeyri hafa lengi verið umdeildar. MYND/ZEPPELIN ARKITEKTAR

Byggingaverktakinn SS Byggir hyggst ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu.

Uppbygging á umræddum reit hefur lengi verið hitamál fyrir norðan en margir bæjarbúar hafa lagst gegn hugmyndum SS Byggis um byggingu háhýsa nærri miðbænum.

Í október 2019 greindi Vísir frá því að bæjarstjórn Akureyrar hafi samþykkt nýja skipulagslýsingu sem lið í því að breyta aðalskipulagi á svæðinu. Með breytingunni yrði verktakafyrirtækinu heimilt að byggja allt að fimm sex til ellefu hæða blandaða byggð á reitnum. Eftir mótmæli bæjarbúa var lagt til að hámarkshæð bygginga yrði sex til átta hæðir.

Sú tillaga kallaði sömuleiðis á að gildandi aðalskipulagi yrði breytt en í því er gert ráð fyrir þremur til fjórum hæðum. Efnt var til ráðgefandi atkvæðagreiðslu vegna þessa í maí en 67 prósent þátttakenda greiddu atkvæði með núgildandi skipulagi. Forsvarsmenn SS Byggis höfðu þá áður útilokað að fyrirtækið myndi koma að byggingu fimm hæða húsa á svæðinu.

Yrðu tillögur SS Byggis að veruleika myndu þær breyta bæjarmyndinni töluvert.ZEPPELIN ARKITEKTAR

Vilja nú losna við lóðirnar

SS Byggir á lóðir og húsnæði á umræddum reit og bauð Akureyrarbæ að kaupa eignirnar fyrr á þessu ári. Reiturinn er stutt frá Eimskipabryggjunni svokölluðu þar sem skemmtiferðaskip leggja gjarnan að og skammt frá miðbæ Akureyrar.

„Eins og ég sé þetta þá er eina leiðin til þess að þarna verði einhver uppbygging að Akureyrarbær eignist allt svæðið og úthluti lóðunum á hefðbundnu lóðaverði. Þá er kannski hægt að gera einhverja minni byggð þarna,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, í samtali við Vísi. Hann segir að bæjaryfirvöld hafi ekki enn svarað erindinu.

Horfa má á kynningu á umræddri tillögu SS Byggis í spilaranum hér fyrir neðan.

Helgi áætlar að verktakinn eigi um 40 prósent af þeim fasteignum sem þyrftu að víkja svo ráðast mætti í nýja uppbyggingu. Þar á meðal er gamalt verkstæði sem SS Byggir hætti að nota fyrir 20 árum og iðnaðarbil sem var keypt í tengslum við verkefnið.

Eftir standa aðrar eignir á reitnum sem þarf að ryðja áður en hægt er að byggja á svæðinu, með tilheyrandi kostnaði.

„Eignirnar eru allar í fullum rekstri, það þarf að kaupa þær fyrst og rífa þær og svo þarf að borga gatnagerðargjöld og annað. Til þess að slíkt geti borið sig og það séu efnahagslegar forsendur fyrir verkefninu þá þarf byggingarmagn að vera meira en nú er í boði,“ segir Helgi.

„Þú nærð ekki því byggingamagni nema hugsanlega með randbyggð eða eitthvað svoleiðis en við teljum að slík byggð muni ekki verða fýsilegur kostur fyrir kaupendur niður á Eyri eins og staðan er núna.“ Með randbyggð er átt við húsaröð þar byggingar mynda lokaða samfellu meðfram ytri jaðri götureits.

Reiturinn afmarkast af rauðu línunum.Akureyrarbær

Helgi bætir við að umhverfið nærri Oddeyrarreitnum sé ekki fyrir alla og jafnvel ólíklegt að verkefni með lágreistri byggð myndi fá fjármögnun hjá fjármálastofnunum. Eins og staðan sé núna blasi þarna við fyrirtæki og braggar sem megi muna sinn fífil fegri.

„Á meðan meiri uppbygging hefur ekki átt sér stað á Eyrinni þá er útsýnið ekki eins og best verður á kosið. Það er ekkert gaman að horfa á einhver iðnaðarport í niðurníðslu út um gluggana.“ Betra sé að geta boðið fólki upp á útsýni yfir bæinn og hinn fagra Eyjafjörð.

Gilandi skipulag sem gerir ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum.Akureyrarbær

Byggingarnar myndu passa illa á svæðinnu

Tillaga SS Byggis um sex til átta hæða hús var kynnt bæjarbúum í maí 2020 og nokkru síðar lagði meirihluti skipulagsráðs til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreyting sem sneri að fyrirhugaðri uppbyggingu yrði auglýst. Í kjölfarið skráðu yfir tvö þúsund manns sig í Facebook-hóp þar sem tillögum um háhýsabyggð á svæðinu var mótmælt.

Stofnandi hópsins sagði í samtali við Vísi í september í fyrra að hún telji að húsin eins og þau hafi verið kynnt passi illa að aðliggjandi byggð. Umræddur reitur væri á áberandi stað og um mikla stefnubreytingu væri að ræða yrði tillagan samþykkt.


Tengdar fréttir

Mótmæla áformum um háhýsi á Oddeyrinni

Stofnaður hefur verið hópur í Facebook í þeim tilgangi að mótmæla hugmyndum um uppbyggingu á háhýsum á Oddeyrinni á Akureyri. Um 1,7 þúsund manns hafa skráð sig í hópinn sem stofnaður var síðastliðið föstudagskvöld.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×