Tónlist

Faðir Britney lætur af forræði sínu yfir fjármálum hennar

Samúel Karl Ólason skrifar
Faðir Britney hefur farið með forræði yfir henni og fjármálum hennar í þrettán ár.
Faðir Britney hefur farið með forræði yfir henni og fjármálum hennar í þrettán ár. EPA/ETIENNE LAURENT

Jamie Spears, faðir tónlistarkonunnar Britney Spears, hefur ákveðið að láta af forræði yfir fjármálum hennar. Söngkonan hefur barist fyrir því undanfarin ár að fá stjórn á eigin lífi á nýjan leik.

Í nýjum dómskjölum sem blaðamenn TMZ hafa séð segir lögmaður Jamie að í rauninni sé ekki tilefni til að hann láti af forræði sínu og deila megi um það hvort það væri í hag dóttur sinnar. Hann hafi ákveðið að láta af verða vegna linnulausra árása sem beinast að honum.

Í skjalinu hefur lögmaðurinn eftir Jamie að hann telji að opinber barátta hans og Britney sé í hennar besta hag. Þá ku hann ætla að vinna með dómara að því að skipa nýjan forráðamann yfir fjárhag dóttur sinnar.

Jamie Spears hefur farið með forræði yfir dóttur sinni frá árinu 2008. Þau hafa átt í baráttu fyrir dómstólum um forræðið. Dómstóll skipaði nýverið sérfræðing til að halda utan um líf Britney á meðan Jamie fer enn með forræði fjármála hennar.

Sjá einnig: Kröfu Britney um að flýta réttarhöldum um forræði hennar hafnað

„Burtséð frá formlegum titli hans mun herra Spears alltaf vera faðir frökenar Spears. Hann mun ávalt elska hana og gera það sem er best fyrir hana,“ segir í umræddu skjali samkvæmt TMZ.

Þá segir lögmaðurinn að Jamie hafi bjargað dóttur sinni fyrir þrettán árum. Þá hafi hún átt verulega erfitt andlega og tilfinningalega og „rándýr“ hafi nýtt sér ástand hennar. Lögmaðurinn segir Jamie aldrei hafa þvingað dóttur sína til þess að spila tónlist.

Lögmaður Britney fagnar ákvörðun Jamie í samtali við TMZ en segir það ekki koma á óvart að hann hafi loks áttað sig á því að þetta væri það sem hann þyrfti að gera. Lögmaður Britney sagði að þau væru þó leið yfir áframhaldandi og skammarlegum árásum Jamie gegn dóttur sinni og öðrum.

„Við hlökkum til að halda rannsókn okkar á hegðun herra Spears og annarra áfram,“ segir Matthew Rosengart, lögmaður Britney. Þá sakaði hann Jamie Spears um að hafa dregið sér milljónir dala úr búi dóttur sínar á undanförnum þrettán árum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×