Lífið

Stjörnulífið: Sumarið komið og nakin í Seljavallalaug

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sumarið er mætt. 
Sumarið er mætt. 

Það er greinilega komið sumar og þjóðin komin í sumargírinn ef marka má samfélagsmiðla.

Stjörnulífið í þessari viku ber einmitt þess merki að að sumarið sé mætt á eyjuna. 

Berglind Festival sjónvarpskona birti nokkuð skemmtilega mynd. 

Sólborg Guðbrandsdóttir, sem býr til tónlist undir nafninu Suncity, sólar sig.

 Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir hefur skipt um skoðun þegar kemur að bleikum lit. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut fór nakin ofan í Seljavallalaug. 

Guðmundur Ingi umhverfisráðherra er kominn í sumarskap.

Plötusnúðurinn vinsæli Dóra Júlía klæðir sig eins og sólin.

 Veiðisumarið er byrjað hjá Bjarna Ben.

Söngkonan Birgitta Haukdal fagnaði með vinkonu sinni Ragnhildi Steinunni sem átti afmæli fyrir helgi. 

 Ljósmyndarinn Helgi Ómars birti fallega mynd af sér og hundinum sínum.  Helgi er virkur á samfélagsmiðlum og vinsæll þar. Hann er einnig fær ljósmyndari. 

Falleg mynd af Theódóri Elmari og Pöttru sem búa saman á Grikklandi. Þar leikur Elmar sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Samfélagsmiðlastjarnan Katrín Edda Þorsteinsdóttir hljóp hundrað kílómetra. Þetta gerði hún í aprílmánuði en setti sér fyrst markmið um að hlaupa 70 kílómetra í apríl en endaði með því að fara hundrað.

Pálmar Ragnarsson sáttur með nýju peysuna frá mömmu. Pálmar er mjög vinsæll fyrirlesari og þjálfar einnig körfubolta í Val.

Samfélagsmiðlastjarnan Hrefna Dan sólaði sig upp á Skaga. 

 „Nú á ég mjög fallega systur - sem er helvíti erfitt því hliðin á henni líta allir út eins og moðhausar. En til þess er nú hatturinn,“ skrifar Starkaður Pétursson sem er vinsæl samfélagsmiðlastjarna og bróðir leikkonunnar Kristínar Pétursdóttur.

 Linda Pé elskar tvo hluti, ströndina og fallegan kjól.

Aron Can fagnaði nýja myndbandinu sem hann gaf út á föstudaginn með kærustunni sinni Ernu Maríu Björnsdóttur. 

 Rúrik Gíslason virðist ætla alla leið í dansþættinum Let´s Dance í Þýskalandi.

Sumarið heldur betur komið í Búlgaríu miðað við þessar myndir Ásdísar Ránar.

Róbert Wessmann er farinn í sólina með fjölskyldunni. Róbert er forstjóri Alvogen og stjórnarformaður Alvotech en með í för voru þau Ksenia Shakhmanovu, unnusta Róberts, og drengurinn þeirra Ace. 

 María Birta getur loksins farið að vinna vinnuna sína í Las Vegas. 

 „Gleðilegt sumar,“ skrifar Birgitta Líf og birti þessa mynd. 

 Sunneva Einars birti tvær skemmtilegar og hressar myndir á Instagram á dögunum. 

Það var heldur betur stuð í þættinum Blindur bakstur á laugardagskvöldið þar sem þau Eva Ruza og BBQ kóngurinn Alfreð Fannar Björnsson spreyttu sig.

Binni Glee, Bassi Maraj og Patrekur Jaime, sem slegið hafa í gegn í sjónvarpsþáttunum Æði á Stöð 2, fóru í mjög áhugaverða myndatöku á Árbæjarsafni. Fróðlegt verður að sjá hvort tökurnar hafi verið fyrir næstu seríu af þáttum þeirra félaga sem kemur á sjónvarpsskjáinn í haust.

 Muna að þvo sér um hendur og hreinsa símann segir Edda Falak. 

Áslaug Arna fór á Hvannadalshnjúk ásamt fjölda kvenna um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×