Menning

RAX Augnablik: „Við verðum að sækja þá strax“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ísjakarnir við Grænlands eru margir gríðarlega stórir og mikilfenglegir.
Ísjakarnir við Grænlands eru margir gríðarlega stórir og mikilfenglegir. RAX

„Þetta er náttúrulega ekki til eftirbreytni,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson um ljósmyndir sem hann tók af tveimur mönnum á ísjaka við Grænland.

RAX hafði siglt þangað á skútu frá Húsavík ásamt vinahóp sínum og voru þeir viku á leiðinni.

Þegar RAX var einn daginn á gúmmíbát að mynda ísjaka ásamt Heiðari og Hans vinum sínum, þá sáu þeir stóran fallegan jaka með stóru gati á. 

„Það er bara einn tíundi hluti upp úr. Við siglum fram hjá honum og ég mynda jakann og segi: „Það vantar einhver hlutföll til að sjá hvað hann er stór.“ Þeir segja þá báðir, Heiðar og Hans, við skulum standa í gatinu,“ segir RAX um það hvernig þessi hugmynd kviknaði. Ein myndanna sem hann tók er í miklu uppáhaldi og sagði hann söguna á bak við hana í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.

„Þetta eru alvöru töffarar, Hans stekkur með fallhlíf og gerir alls konar ævintýri og Heiðar klífur og skíðar fjöll sem maður þorir ekki einu sinni að horfa á. Þannig að það var ekkert við þá tjónkandi. Við siglum á bak við jakann og þeir fara á land og ganga upp í gatið.“

RAX sigldi frá og náði myndum af þeim félögum í gatinu sem sýndi hvað ísjakinn var stór. Myndi honum hvolfa færu þeir örugglega niður á 150 metra dýpi segir RAX.

„Ég tók bara nokkrar myndir og það eiginlega bara þyrmdi yfir mann, þetta er hættulegt, við verðum að sækja þá strax, við getum þetta ekki.“

Frásögnina má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og þar má sjá allar myndirnar sem RAX tók í þessari ævintýraferð. RAX Augnablik eru örþættir og Á borgarísjaka er rúmar fjórar mínútur.

Klippa: RAX Augnablik - Á borgarísjaka

Ragnar Axelsson hefur ferðast oft til Grænlands á ferlinum og skrásett lífið þar. Hann hefur sagt frá nokkrum af þeim ævintýrum í fyrri þáttum af RAX Augnablik og má sjá brot af þeim hér fyrir neðan. 

RAX heimsótti Thule, sem var nyrsta byggð í heimi, árið 1987. Þar fylgdist hann með veiðimönnum úti á ísnum við Grænland í fyrsta skipti, meðal annars manninum sem kallaður var kóngurinn í Thule.

Árið 1997 ferðaðist hann um Austurströnd Grænlands og myndaði þar náttúruna, dýrin og mannlífið. Á Grænlandi myndaði hann meðal annars Hale-Bopp halastjörnuna frægu. RAX var svo að mynda í litlu þorpi ásamt vini sínum þegar þeir komust í hann krappan um miðja nótt og skotið var á þá.

Í síðasta mánuði sagði RAX frá einstökum veiðimanni á Grænlandi að nafni Ole. Hann saumaði skó á sárfætta veiðihundana áður en þeir fóru út á hafísinn. Ole notaði uppblásna selsbelgi við veiðar á hvölum, selum og fleiru.


Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

RAX Augnablik: „Tomas er farinn heim“

„Færeyjar eru alltaf sjarmerandi, það er einn af mínum uppáhalds stöðum og þar er eitthvert besta fólk í heiminum,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson.

RAX Augnablik: Forvitnin varð þeirra banabiti

„Ég þekkti engan og var svona að kynnast mönnum og finna út hverja væri best að tala við. Ole var vinalegur og við urðum ágætis vinir. Hann var mjög góður maður,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson um Ole Nyelsen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×