Menning

RAX Augnablik: „Tomas er farinn heim“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
RAX segir að Tomas hefði getað passað inn í hlutverk í hvaða sjóræningjamynd sem er.
RAX segir að Tomas hefði getað passað inn í hlutverk í hvaða sjóræningjamynd sem er. RAX

„Færeyjar eru alltaf sjarmerandi, það er einn af mínum uppáhalds stöðum og þar er eitthvert besta fólk í heiminum,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson.

Í vinnuferð að mynda fyrir frímerki í Færeyjum árið 1988 kynntist RAX einstökum að nafni Tomas og man enn vel eftir honum í dag.

„Hann var rosa hrifinn af Íslendingum, eins og Færeyingar flestir eru, þetta eru svona frændur okkar og frænkur. Hann segir hvað það hafi verið gaman að sigla við Ísland á skútu og bar Íslendingum gott orð. Ég fór alltaf til hans á kvöldin og fékk mér kaffi og spjallaði við hann.“

Ljósmyndarinn rifjaði upp þeirra kynni og myndirnar sem hann tók af Tomasi, í síðasta þætti af RAX Augnablik.

„Mér fannst hann svo flottur, mér fannst hann eins og sjóræningi. Með húfuna skakka, flottan svip og sat á stein og reykti og spýtti að sjóarasið.“

Enginn kom til dyra

RAX segir Tomas hefði getað fengið hlutverk í hvaða sjóræningjamynd sem er.

„Ég fannst svolítið gaman af þessum manni,“ segir RAX. Hann heimsótti Færeyjar ekki í tvö ár en þegar hann kom þangað aftur ákvað hann að heimsækja Tomas.

„Ég bankaði og enginn kom til dyra.“

Hann hitti vin Tomasar og spurði eftir honum og fékk þá fréttirnar að hann væri látinn.

„Þá sagði hann, Tomas er farinn heim. Það var svolítið fallega sagt um að hann var dáinn.“

Frásögnina í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og Tomas og nunnurnar er rúmar þrjár mínútur.

Þetta er ekki fyrsti kvennahópurinn sem verður á vegi Ragnars Axelssonar. Í þættinum Maríurnar í Lombardinha, segir hann frá skemmtilegum konum sem hann kynntist á ferðalagi.

RAX hefur áður sagt sögur frá Færeyjum í þáttunum RAX Augnablik, enda hefur hann ferðast oft þangað og var meðal annars í mánuð þar að mynda fyrir frímerki þeirra. Hér fyrir neðan má finna nokkrar færeyskar sögur sem vakið hafa athygli síðustu mánuði hér á Vísi.

Sumarið 1988 var ljósmyndarinn Ragnar Axelsson staddur í Færeyum á eyunni Sandey. Það rigndi mikið í litla þorpinu Húsavík þegar hann kom auga á mann á gangi sem studdist við staf.

Maðurinn bauð Ragnari inn til sín í kaffi þar sem þeir spjölluðu saman um heima og geima. RAX tók nokkrar myndir af honum og meðal annars eina mynd þar sem hann sést vera að raka sig.

„27 árum seinna kom ég þarna aftur og ætlaði að skoða mig um. Ég fór að keyra þarna um húsið sem hann átti heima. Það hvarflaði ekki að mér að hann væri enn á lífi,“ segir RAX.

Myndirnar af bræðrunum Friðriki og Sófusi voru einstaklega skemmtilegar. RAX hitti bræðurna í heimsókn sinni í þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997.

Í Fugley kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum eins og Árna Dal, Oliviu, Guttormi og Símoni. RAX leið eins og hann væri staddur í leikriti.


Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

RAX Augnablik: Forvitnin varð þeirra banabiti

„Ég þekkti engan og var svona að kynnast mönnum og finna út hverja væri best að tala við. Ole var vinalegur og við urðum ágætis vinir. Hann var mjög góður maður,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson um Ole Nyelsen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×