Tónlist

Bríet hlaut fern verðlaun

Tinni Sveinsson skrifar
Bríet þakkaði upptökustjóranum Pálma Ragnari Ásgeirssyni þegar hún tók við verðlaunum fyrir plötu ársins.
Bríet þakkaði upptökustjóranum Pálma Ragnari Ásgeirssyni þegar hún tók við verðlaunum fyrir plötu ársins.

Hlustendaverðlaunin 2021 voru sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Sigurvegari kvöldsins er án efa Bríet sem hlaut fern verðlaun. 

Ýmsir tónlistarmenn komu fram á verðlaununum: XXX Rottweiler hundar, Bríet, Power Paladin, Jón Jónsson og GDRN, Páll Óskar og Birnir. Þá frumfluttu bæði Daði Freyr og Herra Hnetusmjör ný lög.

85 þúsund atkvæði

Kosning til verðlaunanna fór fram hér á Vísi og bárust alls um 85 þúsund atkvæði en kosið var í átta flokkum.

Bríet hlaut verðlaun fyrir plötu ársins (Kveðja, Bríet), lag ársins (Esjan) og var valin bæði söngkona og poppflytjandi ársins. Daði Freyr hlaut verðlaun fyrir myndband ársins (Think About Things) og var valinn söngvari ársins. Hljómsveitin Kaleo var valin rokkflytjandi ársins og nýliði ársins var Kristín Sesselja.

Bríet flutti lagið Draumaland í lok þáttar ásamt fríðu föruneyti. Hægt er að horfa á það í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Bríet - Draumaland

Hér fyrir neðan má önnur atriði kvöldsins sem voru hvert öðru betra. Sannkölluð tónlistarveisla.

Klippa: Birnir og Páll Óskar - Spurningar
Klippa: Power Paladin - Kraven the Hunter
Klippa: Herra Hnetusmjör - Hlust­enda­verð­launin 2021
Klippa: XXX Rottweiler hundar - Best of syrpa
Klippa: Jón Jónsson og GDRN - Ef ástin er hrein
Klippa: Daði Freyr - Hlustendaverðlaunin 2021

Þetta er í áttunda skiptið sem hátíðin fer fram.

Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.

Hægt er að horfa á verðlaunaþáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.

Klippa: Hlust­enda­verð­launin 2021

Hér má síðan sjá tilnefningarnar í ár í heild sinni.


Lag ársins

  • Kaleo – I Want More
  • Bríet – Esjan
  • Ingó – Í kvöld er gigg
  • GusGus og Vök - Higher
  • Herra Hnetusmjör – Stjörnurnar
  • Það bera sig allir vel - Helgi Björns
  • Think about things - Daði Freyr

Poppflytjandi ársins

  • Bríet
  • Ingó
  • Herra Hnetusmjör
  • Daði Freyr
  • Helgi Björns
  • Elísabet Ormslev
  • GDRN
  • Ásgeir

Rokkflytjandi ársins

  • Kaleo
  • Ham
  • Of Monsters and men
  • Skoffín
  • Une Miseré

Söngkona ársins

  • Bríet
  • GDRN
  • Sigrún Stella
  • Elísabet Ormslev
  • Margrét Rán
  • Sigríður Thorlacius
  • Klara Elíasdóttir
  • Katrína Mogensen

Söngvari ársins

  • Jökull Júlíus
  • Helgi Björns
  • Ingó
  • Herra Hnetusmjör
  • Ásgeir
  • Daði Freyr
  • Birgir Steinn
  • Sverrir Bergmann

Plata ársins

  • Kveðja, Bríet - Bríet
  • KBE kynnir: Erfingi krúnunnar - Herra Hnetusmjör
  • Sátt - Ásgeir
  • Yfir hafið - Hjálmar
  • Hjaltalín - Hjaltalín
  • GDRN - GDRN
  • Ride the fire - Mammút
  • Í miðjum kjarnorkuvetri - Jói P og Króli -
  • Bleikt ský - Emmsjé Gauti

Nýliði ársins

  • Draumfarir
  • Skoffín
  • Celeb
  • Kristín Sesselja

Myndband ársins

Jónsi - Sumarið sem aldrei kom. Leikstjóri: Frosti Jón Runólfsson.

Klippa: Jónsi - Sumarið sem aldrei kom

Emmsjé Gauti - Bleikt Ský/Flughræddur. Leikstjóri: Hlynur Helgi Hallgrímsson & Emmsjé Gauti.

Klippa: Emmsjé Gauti - Bleikt ský / Flughræddur

JóiPé x Króli - Óska Mér. Leikstjóri: Júlía Bambino.

Klippa: JóiPé X Króli - Óska mér

Floni - Hinar stelpurnar. Leikstjóri: Vignir Daði og Ísak Hinriksson.

Klippa: Floni - Hinar stelpurnar

Hatari - Engin miskunn. Leikstjóri: Magnús Leifsson.

Klippa: Hatari - Engin miskunn

GusGus - Higher ft. Vök. Leikstjóri: Arni & Kinski.

Klippa: GusGus - Higher ft. Vök

Daði & Gagnamagnið - Think About Things. Leikstjóri: Guðný Rós Þórhallsdóttir.

Klippa: Daði Freyr (Daði & Gagnamagnið) - Think About Things

Eyþór Ingi & Lay Low - Aftur Heim Til Þín. Leikstjóri: Gottskálk Daði Bernhöft Reynisson.

Klippa: Eyþór Ingi & Lay Low - Aftur heim til þín

Cult of Lilith - Atlas ft. Jón Már. Leikstjóri: Dániel Puskás.

Klippa: Cult of Lilith - Atlas ft. Jón Már

Daughters of Reykjavík - THIRSTY HOES. Leikstjórn: Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Klippa: Daughters of Reykjavík - Thirsty Hoes

Of Monsters and Men - Visitor. Leikstjórn: Þóra Hilmarsdóttir.

Klippa: Of Monsters and Men - Visitor





Fleiri fréttir

Sjá meira


×