Enski boltinn

Klopp harður á því að taka sér ársleyfi eftir Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp með Trent Alexander-Arnold eftir sigurinn á Wolves í síðasta leik.
Jürgen Klopp með Trent Alexander-Arnold eftir sigurinn á Wolves í síðasta leik. AP/Paul Ellis

Þýska knattspyrnugoðsögnin Lothar Matthäus fékk Jürgen Klopp í viðtal og þar talaði knattspyrnustjóri Liverpool um framtíð sína. Hann segist hafa gert samkomulag við fjölskyldu sína.

Lothar Matthäus fékk Jürgen Klopp í viðtal í nýjasta blað SportBild og þar var mikið rætt um það að Klopp komi ekki til greina sem landsliðsþjálfari í sumar.

Lothar Matthäus spilaði í fimm heimsmeistarakeppnum á ferlinum og er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu úrslitakeppni HM með 25 leiki. Hann var fyrirliði þýska liðsins sem varð heimsmeistari árið 1990.

Joachim Löw hættir með þýska landsliðið eftir EM í sumar og menn litu strax til Jürgen Klopp nú þegar ekkert gengur hjá Liverpool liðinu. Væri þetta tímapunktur fyrir Klopp að segja þetta gott á Anfield.

Klopp sjálfur talaði hins vegar hreint og skýrt á næsta blaðamannafundi sínum og sagðist ætla að klára samning sinn við Liverpool sem rennur út sumarið 2024.

„Ég sagði ekki að ég vildi ekki verða landsliðsþjálfari heldur að ég gæti það ekki. Það er mikill munur þar á,“ sagði Jürgen Klopp.

„Ég er í mikilvægu starfi hér hjá Liverpool. Þetta er mitt sjötta ár og ég hef byggt upp ótrúleg sambönd við fólk sem ég er að vinna með á hverjum degi. Við treystum á hvert annað. Einmitt núna, þegar við glímum við erfiðleika þá kemur ekki til greina að stökkva frá borði,“ sagði Klopp.

„Ég vil leysa þetta með fólkinu sem vinnur með mér. Það kemur ekki til greina að segja: Það væri nú áhugavert að taka við landsliðinu. Án efa væri það mikill heiður en þetta er ekki rétti tímapunkturinn fyrir mig. Þetta er ekki möguleiki núna,“ sagði Klopp.

En hver á þá að taka við þýska landsliðinu? „Mér finnst Ralf Rangnick vera frábær þjálfari ekki síst fyrir sambandið þar sem hann hefur verið að reyna að breyta hlutum. Ralf gæti komið ýmsu í gegn og væri mjög góður kostur. Hann er góður þjálfari og er alltaf tilbúinn að hugsa út fyrir kassann,“ sagði Klopp.

Klopp sjálfur mun ekki stökkva í nýtt starf um leið og hann hættir hjá Liverpool. Hann tók sér frí eftir tíma sinn hjá Dortmund og mun gera það líka þegar samningur hans rennur út hjá Liverpool. Klopp hefur lofað fjölskyldu sinni því.

„Ég mun taka mér þetta leyfi, það er enginn vafi á því. Ef við vinnum ekki fleiri leiki í úrvalsdeildinni og og afstaða eigandans breytist þá mun ég taka ársleyfi. Ekkert ef eða kannski. Það er samkomulag á milli mín og fjölskyldunnar og líklega á milli mín og heimilislæknisins líka,“ sagði Klopp.

„Það er alveg á hreinu að þegar ég hætti með Liverpool þá mun ég taka mér eitt ár í frí. Það á enginn að hringja í mig þá, ekki heldur heldur eftir fjóra mánuði eða eftir sex mánuði. Sama hvað hver reynir. Þetta verður eins árs frí,“ sagði Jürgen Klopp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×