Gylfi með stoð­sendinguna er E­ver­ton komst upp að hlið Liver­pool

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi í baráttunni í leiknum i kvöld.
Gylfi í baráttunni í leiknum i kvöld. Gareth Copley/Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Everton er liðið vann 1-0 sigur á Southampton í síðasta leik helgarinnar í enska boltanum.

Gylfi Þór var aftur kominn í byrjunarlið Everton í kvöld eftir að byrjað á bekknum og komið inn á og skorað í 2-0 sigrinum á Liverpool um síðustu helgi.

Richarlison kom Everton yfir á níundu mínútu. Boltinn féll fyrir Gylfa Þór sem gaf frábæra sendingu á Brasilíumanninn sem skoraði.

Everton virtist vera tvöfalda forystuna á 26. mínútu er Michael Keane skoraði en eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt af vegna rangstæðu.

Southampton ógnaði með hraða sínum og krafti en þeir fengu nokkur góð færi, sér í lagi í síðari hálfleik.

Danski varnarmaðurinn Jannick Vestergaard fékk dauðafæri á 89. mínútu en Jordan Pickford sá við honum. Lokatölur 1-0.

Everton er í sjöunda sætinu með 43 stig, jafn mörg og grannarnir í Liverpool, en Everton á leik til góða.

Southampton er í fjórtánda sætinu með 30 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira