Sprettur Traor­e tryggði Úlfunum sigur á Leeds

Anton Ingi Leifsson skrifar
Traore hissa á að hafa skorað markið sem reyndist sigurmarkið.
Traore hissa á að hafa skorað markið sem reyndist sigurmarkið. Nick Potts/Getty

Wolves vann annan leikinn í röð er liðið vann 1-0 sigur á Leeds í kvöld. Leikurinn var afar jafnur og einungis eitt mark skildi liðin að.

Bæði lið fengu sín færi í fyrri hálfleiknum en Úlfarnir ívið betri færi. Nelson Semedo fékk meðal annars tvö góð færi en markalaust í hálfleik.

Adama Traore var maðurinn á bak við sigurmarkið. Hann tók á rás, þrumaði boltanum að marki Leeds en það vildi ekki betur til fyrir Leeds að boltinn fór í slá, bakið á markverðinum Illan Meslier og inn.

Nýliðarnir reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna metin en allt kom fyrir ekki og afar sterkur 1-0 sigur Úlfanna í fyrsta leik helgarinnar.

Wolves er með 33 stig í ellefta sætinu og fór upp fyrir Leeds með sigrinum. Leeds er sæti neðar með stigi minna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira